Á hvaða svæðum get ég horft á sjónvarp í símann? (slóð)
Svar
Sjónvarp í símann er aðeins aðgengilegt á 3G neti Símans. Hér má sjá yfirlitsmynd yfir útbreiðslu 3G netsins sést.
Á þessum stöðum hefur 3G net Símans verið sett upp og er það einmitt aukinn gagnaflutningshraði 3G tækninnar sem gerir mögulegt að bjóða sjónvarpsþjónustu í farsíma í fullum gæðum.
Er greitt fyrir gagnamagn fyrir niðurhal á sjónvarpshugbúnaði? (slóð)
Svar
Já - niðurhal á sjónarpshugbúnaði (client) kostar um 300 kr. Athugið þó að þetta á aðeins við þegar þarf að sækja hugbúnaðinn sérstaklega í símtækið. Flestir símar eru þó forhlaðnir með hugbúnaðinum.
Er Sjónvarpið í símann frítt í útlöndum á frítímabilinu? (slóð)
Svar
Nei, sjónvarpið er aðeins frítt á 3G neti Símans á Íslandi. Erlendis gildir núverandi gjaldskrá fyrir reiki.
Erlendis er æskilegast að tengjast 3G neti viðkomandi lands en þó er hægt að tengjast sjónvarpinu frá öllum 2G kerfum erlendis sem Síminn hefur GPRS reikisamninga við. Hins vegar er ekki tryggt að gagnaflutningshraði í viðkomandi neti nægi til að fá viðunandi gæði. En fyrir viðskiptavini í EDGE kerfi með EDGE samhæft handtæki, þá ætti þjónustan að virka ágætlega.
Viðmiðunarverð í reiki má finna hér: http://www.siminn.is/forsida/einstaklingar/farsiminn/verd/nanar/store466/item35802/
Að meðaltali er bandbreidd sjónvarpsins um 100Kbit/s og meðalverð í reiki eru um 1kr/Kb sem gerir um 100 kr/sek fyrir Sjónvarp í símanum.
Hvað á skal gera ef ég kemst ekki inn á netið í símanum? (slóð)
Svar
- Slökktu á símanum og taktu rafhlöðuna úr.
- Bíddu í 15 sek.
- Settu rafhlöðuna í aftur og kveiktu á farsímanum.
Ef þú getur ekki tengst eftir þetta, þá þarf að eyða út GPRS-stillingunum í farsímanum þínum og sækja þær aftur.
Hvað eru heimasíður sem eru sérsniðnar fyrir farsímann stórar? (slóð)
Svar
Heimasíðurnar eru í rauninni litlar útgáfur af hefðbundnum heimasíðum svo þær taka minna pláss og því auðvelt að hlaða þeim niður.
Hér eru nokkur dæmi um hve mikið er í einu megabæti (Mbyte):
- 500-800 farsímasíður
- 400 tölvupóstar þar sem hver er um 2,5 Kbyte
- 50-100 tölvupóstar með smáum viðhengjum
- Ein PowerPoint-kynning upp á 30 - 50 glærur
- Eitt Word-skjal upp á u.þ.b. 90 blaðsíður
Hvað geri ég ef GPRS/MMS-stillingarnar sem ég fékk sendar, virka ekki? (slóð)
Svar
Slökktu á símanum og taktu rafhlöðuna úr honum. Ef stillingarnar komast ekki í lag við það, hafðu þá samband við Tæknilega aðstoð í 800 7000.
Hvað gerir EDGE fyrir mig? (slóð)
Svar
Þú færð hraðari tengingu á Internetið hvar og hvenær sem er, hvort sem er í farsímann eða fartölvuna.
Þú hefur möguleika á að lesa tölvupóst eða nýjustu fréttir með meiri hraða en áður, hvort sem þú ert staddur úti garði eða á kaffihúsi. Einnig gerir þetta þér kleift að að vafra á netinu í símanum eða á fartölvunni þínum á meiri hraða en þekkst hefur hingað til í gegnum farsímakerfið.
Upplifun verður mjög jákvæð þar sem öll samskipti með gagnaflutningum ganga mun greiðar fyrir sig. Þú ert bæði fljótari að senda frá þér myndir og önnur gögn og þau eru jafnframt fljótari að berast. Fyrir þá sem tengja fartölvur mikið við farsímana verður leiðin einnig miklu greiðari og hefur Síminn til sölu gagnakort sem styðja EDGE.
Hvað þarf ég til að geta hringt myndsímtal? (slóð)
Svar
Þú þarft að vera á 3G svæði með 3G SIM-kort og vera með símtæki sem styður 3G.
Nánari upplýsingar
Hvar get ég notað netið í símanum? (slóð)
Svar
Innanlands getur þú farið inn á netið alls staðar þar sem er GSM símasamband. Erlendis getur þú farið á netið í símanum alls staðar þar sem síminn er með GPRS reikisamninga en þá er greitt fyrir GPRS á erlendum taxta.
Símtæki sem styðja GPRS en eru á svæðum þar sem það næst ekki, tengjast sjálfkrafa inn á Netið símanum í gegnum farsímann. Símtæki sem styðja EDGE en eru á svæðum þar sem það næst ekki, tengjast sjálfkrafa inn með GPRS eða Netið í símanum í gegnum farsímann.
Hvernig get ég notað Sjónvarpið í símanum mínum? (slóð)
Svar
Þú þarft að vera á 3G svæði, með 3G SIM kort símtæki sem styður 3G og réttar stillingar fyrir streymi settar upp í símtækinu.
Ef einhvervandamál koma upp er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Símans 8007000.
Þegar þú ætlar að nota Sjónvarp Símans þarftu að byrja á því að fara á netið í Símanum. Farðu á slóðina “m3.siminn.is“ . Þetta er heimasíða Símans fyrir farsíma og á henni miðri stendur Sjónvarp Símans, smelltu á þann hlekk.
Þegar því er lokið þarftu að smella á þann dagskrárlið sem þú vilt horfa á. Símtækið ætti nú að opna afspilunarviðmótið sem í því er og spila þann dagskrárlið sem þú smelltir á.
Athugið að sum símtæki eru ekki með afspilunarviðmót (media player) og geta þess vegna ekki nýtt sér Sjónvarp í Símanum.
Hvernig virkar 3G netlykillinn? (slóð)
Svar
3G netlykillinn er í raun lítið loftnet sem notar SIM- kort svipað því sem er í farsímum til að tengjast við 3G senda.
3G netlykill býður líka upp á að þú tengist svokölluðu 2G svæði þegar þú ert ekki á 3G svæði. Hraðinn sem þú færð á þannig svæði er ekki nálægt því sá sami og á 3G kerfi
Hvers vegna get ég ekki móttekið myndir í símanum? (slóð)
Svar
Þú ættir að athuga eftirfarandi:
- Ertu með stillingar fyrir netið í símanum?
- Ertu með stillingar fyrir móttöku mynda í símanum?
- Prófaðu að senda þér stillingar aftur
- Þegar stillingarnar hafa borist skaltu slökkva og kveikja á símtækinu og prófa aftur að fá senda mynd
Hér má sækja ýmsar stillingar fyrir farsima.
Ef ekkert virkar er þér velkomið að hringja í þjónustuver Símans 8007000
Hvers vegna virkar netið í símanum ekki? (slóð)
Svar
Þú ættir að athuga eftirfarandi:
- Ertu með stillingar fyrir netið í Símanum?
- Prófaðu að senda þér stillingar aftur Stillingar fyrir Farsíma
- Þegar stillingarnar hafa borist skaltu slökkva og kveikja á símtækinu og prófa aftur að fara á netið í símanum.
Ef ekkert virkar er þér velkomið að hringja í þjónustuver Símans 8007000.
Kostar að horfa á Sjónvarpið í Farsímanum? (slóð)
Svar
Öll notkun á Sjónvarpi Símans í Farsímanum er frí.
Styðja öll símtæki við sjónvarp í símanum? (slóð)
Svar
Í dag eru flest símtæki sem seld eru á Íslandi 3G. Nær öll þessara símtækja styðja Sjónvarpið í Símanum.
Ef skoðað er umfjöllun á netinu eða í bækling með símanum getur þú séð hvort hann styðji 3G.
Þarf ég stillingar til að nota 3G þjónustu? (slóð)
Svar
Eina tilfellið sem þú þarft 3G stillingar er þegar þú ætlar að horfa á Sjónvarp í farsímanum en þá þarft þú stillingar fyrir Streymi. Til að myndsímtal virki þarft þú ekki neinar sérstakar stillingar
Til að nýta þér 3G þjónustu þarftu síma og símkort sem styður 3G og vera á 3G neti Símans. Komdu með gamla símkortið þitt og við skiptum því út fyrir 3G kort, endurgjaldslaust.
