Aðstoð

Vantar þig aðstoð?

Hér finnur þú svör við ýmsu er varðar farsímaþjónustu og ábendingar um það hvernig þú getur notfært þér sjálfsafgreiðslu á þjónustuvefnum. Ef þú ert með frekari spurningar þá geturðu hringt í 800 7000, eða sent okkur fyrirspurn.

Senda fyrirspurn

Vandamál

Ef þig grunar að símanum hafi verið stolið eða þú hefur einfaldlega týnt honum þarftu að byrja á því að hringja í þjónustuver Símans 8007000 og tilkynna um týndan síma. Þá lokum við á allar hringingar úr símanum þannig þú lendir ekki í því að hann sé notaður af öðrum.

Stuld á símtækinu sjálfu þarftu síðan að tilkynna til lögreglunnar á viðkomandi svæði.

Síminn beinir öllum ábendingum er varða símaónæði til lögreglunnar á viðkomandi svæði.

Ýmislegt getur gert það að verkum að símtækið þitt missi samband. Þú þarft að byrja á því að kanna hvort aðrir símar missi samband á sama stað. Ef svo er þá skaltu endilega tilkynna það til þjónustuvers Símans 8007000 og gefa nákvæmlega upp á hvaða stað símtölin slitna. Hlutir í umhverfinu geta haft mikið um það að segja hversu gott samband er á hverjum stað. Venjulegur sendir drífur 35 km radíus í beinni sjónlínu. Þetta þýðir að t.d. fjöll, háhýsi og annað slíkt getur haft áhrif á langdrægni sendanna.

Ef þú ert staddur/stödd innandyra getur járn í húsinu haft mikið að segja um gæði sambandsins. Þess vegna getur Síminn ekki borið ábyrgð á því hvernig sambandið er innanhúss hjá þér.

Allar ábendingar varðandi dreifikerfi Símans eru vel þegnar. Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver í síma 800 7000 eða 8007000@siminn.is. Nauðsynlegt er að gefa upp nákvæma staðsetningu á því hvar sambandið er lélegt til að hægt sé að skoða málið frekar.

Talhólfsþjónusta

Þegar þú færð skilaboð í talhólfið þitt getur þú annaðhvort hlustað á þau til enda eða ýtt tvisvar sinnum á 3 til að spóla yfir skilaboðin. Með því að ýta síðan á 5 eyðir þú skilaboðunum.

Lengd svarkeðju

Símsvarakveðjan getur verið lengst 30 sekúndur.

Þú hringir í (354) talhólfsnúmerið og velur strax # þegar svarað er. Þá slærðu inn fjögurra stafa lykilnúmerið þitt og velur #. Þú getur einnig hringt í 8800100 úr GSM-símanum þínum til að hlusta á talhólfið, svo slærðu inn GSM-númerið þitt, velur # fjögurra stafa lykilnúmer og #.

Það eru tvær leiðir til að hlusta á skilaboð í talhólfinu:

  • Þú hringir í (354) talhólfsnúmerið og velur strax # þegar svarað er. Þá slærðu inn fjögurra stafa lykilnúmerið þitt og velur #.
  • Þú hringir úr GSM símanum þínum í +354 8800 100 og slærð inn GSM númerið þitt og # lykilorð talhólfsins og #
  • Lykilorðið er 9999 ef því hefur aldrei verið breytt.
    Hægt er að hringja í þjónustuver Símans 800 7000 eða +354 550 9200 ef þú ert staddur erlendis til að fá upplýsingar um gleymt lykilorð.

Flutningur Virkur Óvirkur
Ekki svarað **61*8800100# ##61#
Utan þjónustusvæðis /slökkt **62*8800100# ##62#
Á tali **67*8800100# ##67#
Alltaf **21*8800100# ##21#
Tímastilltur flutningur **61*8800100**tími# ##61#

Auðveldasta aðferðin er sú að stimpla inn ♯♯002♯ og ýta á 'hringja takkann' til að hringja. Einnig er hægt gera þetta með aðgerð í símtækinu sjálfu.

Sá sem hefur ætlað að skilja eftir kveðju í hólfinu þínu, hefur óvart sett símtalið í bið með því að smella á "Hold" takkann. Það sem þú getur gert er að spóla út á enda skilaboðanna með því að velja tvisvar sinnum 3 og velja svo 5 til að eyða.

Hringiflutningur

Með hringiflutningi er hægt að flytja hringingu í GSM síma í annað símanúmer innanlands eða utan, í GSM kerfinu, í NMT kerfinu eða í talhólf. Hringiflutningar í fastlínu, GSM númer eða NMT númer eru eftirfarandi:


Flutningur Virkur Óvirkur
Ekki svarað **61*símanúmer# ##61#
Utan þjónustusvæðis /slökkt **62*símanúmer# ##62#
Á tali **67*símanúmer# ##67#
Alltaf **21*símanúmer# ##21#
Tímastilltur flutningur **61*símanúmer**tími# ##61#

Hægt er að loka fyrir hringingar úr símum í símatorg og símtöl til útlanda. Þú getur virkjað læsingar og tekið þær af á Þjónustuvefnum.

Með númerabirtingu er hægt að sjá númer þess sem hringir hverju sinni, nema sá hinn sami noti sérþjónustuna númerleynd. Þegar hringt er frá útlöndum birtast númerin sjaldnast.

Með númerleynd má koma í veg fyrir að númer birtist á skjá þess GSM síma sem hringt er í. Sækja þarf sérstaklega um númerleynd.

Einnig er til tímabundin númerleynd. Sú þjónusta er gjaldfrjáls og virkjuð á eftirfarandi hátt: #31# Símanúmer. Síðan er hringt. Sumir símar bjóða fasta númeraleynd í valmynd og er notendum bent á að kynna sér leiðarvísi símtækis.

Þessi þjónusta gerir þér kleift að svara hringingu þótt þú sért í öðru símtali. Flestar gerðir GSM síma bjóða þennan möguleika í valmynd en einnig er hægt að gera þjónustuna virka á eftirfarandi hátt: *43# og staðfest með því að ýta hringitakkann á símanum. Þjónustan er aftengd svona: #43# og staðfest með því að ýta hringitakkann á símanum. Sækja þarf sérstaklega um símtal bíður. Að öðru leyti vísast í leiðarvísi símtækisins.

Aðrir vefir