Uppsetning á svarhólfi

Þegar verið er að setja upp svarhólf í fyrsta skipti þarf að velja lykilnúmer og lesa inn svarhólfskveðju.

  1. Hringja í viðeigandi svarhólfsnúmer 878-xxxx og ýta strax á # þegar svarað er.
  2. Þá er beðið um lykilnúmer og svo þarf að staðfesta með #. (þegar svarhólf eru sett upp í fyrsta skiptið er lykilorðið: 9999)
  3. Þá þarf að velja nýtt 4-7 stafa lykilnúmer og staðfesta með #.
  4. Nýja lykilnúmerið er lesið upp.
  5. Þá er beðið um að lesa inn nýja kveðju og staðfesta með #. Munið að endurtaka hana ef hún á að heyrast oftar en einu sinni. Kveðjan má vera að hámarki. 3 mínútur.
  6. Slá inn # að lestri loknum.
  7. Hlusta á kveðjuna.
  8. Samþykkja með 2 ef hún er ok.
  9. Velja 1 ef að lesa á inn nýja kveðju.

Þá hefur nýja svarhólfið verið sett upp.

Breyting á svarhólfskveðju eða lykilnúmeri svarhólfs

Þegar breyta á svarhólfskveðju eða lykilnúmeri er það gert á eftirfarandi hátt.

  1. Hringja beint í svarhólfsnúmerið 878-xxxx og ýta strax á # meðan verið er lesa kveðjuna.
  2. Þá er beðið um lykilnúmer og svo þarf að staðfesta með #. (ef lykilnúmerinu hefur ekki þegar verið breytt er það 9999 )
  3. Velja 5 til að breyta.
  4. Velja 1 til að breyta kveðju. Munið að endurtaka hana ef hún á að heyrast oftar en einu sinni. Kveðjan má vera að hámarki 2 mínútur)
  5. Velja 4 til að breyta lykilnúmerinu.
  6. Fylgja fyrirmælunum sem lesin eru.



Aðrir vefir