Uppsetning á faxhólfi

Í aðalvali hólfs velur þú 2 til að komast inn í faxhólfsvalið.

Þú getur á auðveldan hátt sent úr símanum fax í það faxtæki sem er næst þér á hverjum tíma til útprentunar og líka stillt það þannig að öll föx berast sjálfkrafa í skilgreint faxtæki.

Undirvalmöguleikar

Flytja öll ný föx Þegar valið er „Flytja öll ný“ eru öll ný föx send í faxtæki til prentunar. Slá þarf inn faxnúmer og #. Velja þarf 1 til að staðfesta rétt númer.

Hlusta á eitt í einu Þegar þú hefur valið að hlusta þá er sagt hvenær faxið barst. Eftir það hefur þú fjóra möguleika.

  • 3 Flytja faxið í faxtæki
  • 5 Eyða faxi
  • 6 Næstu skilboð
  • # Taka strax við faxi

Sjálfkrafa flutningur Til að stilla sjálfkrafa flutning er valið 5 í Aðalvali hólfsins til að breyta og farið í gegnum eftirtaldar aðgerðir:

  • Valið er 4 fyrir uppsetningu
  • Valið er 3 fyrir sjálfkrafa flutning.
  • Valið er 1 fyrir tegund og 2 fyrir öll föx.
  • Valið er 2 fyrir móttökunúmer og #.
  • Til að staðfesta er valið 9.



Aðrir vefir