Ég týndi símanum mínum, hvað get ég gert? (slóð)
Hvað á ég að gera ef ég hef týnt farsímanum mínum?
Svar
Ef þig grunar að símanum hafi verið stolið eða þú hefur einfaldlega týnt honum þarftu að byrja á því að hringja í þjónustuver Símans 8007000 og tilkynna um týndan síma. Þá lokum við á allar hringingar úr símanum þannig þú lendir ekki í því að hann sé notaður af öðrum.
Stuld á símtækinu sjálfu þarftu síðan að tilkynna til lögreglunnar á viðkomandi svæði
Ég verð fyrir símaónæði, hvað get ég gert? (slóð)
Svar
Síminn beinir öllum ábendingum er varða símaónæði til lögreglunnar á viðkomandi svæði.
Hvar finn ég PUK númer símans míns? (slóð)
Svar
Þú finnur PUK númer farsímans þíns á Þjónustuvef Símans. Þú getur sömuleiðis hringt í síma 8007000 ef þú ert eigandi símanúmersins. Ef þú ert með Frelsi frá Símanum getur þú fundið PUK númerið á Mitt Frelsi þjónustuvefnum þínum.
Hvers vegna dettur sambandið í símanum mínum út? (slóð)
Svar
Ýmislegt getur gert það að verkum að símtækið þitt missi samband. Þú þarft að byrja á því að kanna hvort aðrir símar missi samband á sama stað. Ef svo er þá skaltu endilega tilkynna það til þjónustuvers Símans 8007000 og gefa nákvæmlega upp á hvaða stað símtölin slitna.
Hlutir í umhverfinu geta haft mikið um það að segja hversu gott samband er á hverjum stað. Venjulegur sendir drífur 35 km radíus í beinni sjónlínu. Þetta þýðir að t.d. fjöll, háhýsi og annað slíkt getur haft áhrif á langdrægni sendanna.
Ef þú ert staddur/stödd innandyra getur járn í húsinu haft mikið að segja um gæði sambandsins. Þess vegna getur Síminn ekki borið ábyrgð á því hvernig sambandið er innanhúss hjá þér.
Allar ábendingar varðandi dreifikerfi Símans eru vel þegnar. Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver Símans 8007000 eða 8007000@siminn.is.
Nauðsynlegt er að gefa upp nákvæma staðsetningu á því hvar sambandið er lélegt til að hægt sé að skoða málið frekar.
