Af hverju get ég hvorki tekið á móti né sent myndskilaboð? (slóð)
Svar
Líklegasta útskýringin er sú að þig vantar MMS- og/eða GPRS-stillingar í símtækið þitt.
Þú getur sótt þér GPRS og MMS stillingar hér eða með því að hringja í 800 7000.
Ég get ekki tekið á móti SMS-um, hver gæti ástæðan verið? (slóð)
Svar
Algengustu ástæður fyrir því að geta ekki móttekið SMS eru :
- Innhólfið "Inbox" og úthólfið "Outbox" eru full.
- SMS kemst ekki til skila, prófaðu að senda sjálfum þér frítt sms af siminn.is
- Númer miðstöðvar: Athugaðu SMS-miðstöð "Service centre number" inni í skilaboðastillingunum "Message settings". Númer miðstöðvar á að vera +3548900100 og SMS gerð þarf að vera stillt á: texti "message sent as text".
Get ég áframsent MMS-skeyti frá símanum mínum? (slóð)
Svar
Þú getur vistað öll MMS-skeyti sem þú færð send á MMS-símann þinn. Þaðan getur þú síðan sent þær myndir sem þú átt á aðra viðtakendur.
Get ég fengið MMS-skeyti þó ég eigi ekki MMS-síma? (slóð)
Svar
Já, viðskiptavinir sem ekki eiga MMS-síma fá sent SMS-skeyti sem vísar þeim á slóð á siminn.is þar sem MMS-skeytið er aðgengilegt.
Eftir að MMS skeyti er sent er hægt að skoða það einu sinni í 24 klst, svo er því eytt.
Hvað geri ég ef GPRS/MMS-stillingarnar sem ég fékk sendar, virka ekki? (slóð)
Svar
Slökktu á símanum og taktu rafhlöðuna úr honum. Ef stillingarnar komast ekki í lag við það, hafðu þá samband við Tæknilega aðstoð í 800 7000.
Hvenær eyðast myndskilaboðin sem ég fæ á vefnum? (slóð)
Svar
Þeir viðskiptavinir sem geta ekki móttekið MMS-myndskilaboð fá senda slóð með SMS. Í skeytinu er kóði sem viðskiptavinur notar til þess að nálgast myndskilaboðin á tilheyrandi slóð.
Eftir að MMS skeyti er sent er hægt að skoða það einu sinni í 24 klst., síðan er því eytt.
Hvernig get ég séð hvort að viðtakandi hafi fengið MMS-skilaboð frá mér? (slóð)
Svar
Hægt er að virkja "Skilatilkynningu" í símanum þínum í valmyndinni fyrir skilaboðin. Í stillingum er valið "Myndskilaboð eða Marg.mskilaboð". Þar er hægt að velja hvort að kveikt eða slökkt sé á skilaboðatilkynningu.
Hvernig get ég skoðað myndskilaboð sem berast með SMS? (slóð)
Svar
Í SMS-skeytinu kemur fram veffang og lykilnúmer. Þú þarft að fara inn á Internetið og slá inn veffangið. Þá kemur upp vefsíða sem biður um GSM-númerið þitt og lykilnúmerið. Þá getur þú skoðað MMS-myndskilaboðið.
Hvernig sendi ég myndskilaboð (MMS)? (slóð)
Svar
Þú byrjar á því að taka mynd með símanum eða sækir skrá úr myndamöppu. Í stað þess að velja textaskeyti velur þú myndskilaboð og setur inn myndefni. Einnig er hægt að bæta við texta eða hljóðskrá til að fylgja myndinni. Eftir það eru myndskilaboðin send á svipaðan hátt og SMS-skeyti.
Þegar skeytið er sent fer það um GPRS-kerfi Símans og til viðtakanda. Sendandi og móttakandi verða að hafa MMS-stillingar í símanum sínum til að móttaka skeytið. Stillingar má finna á www.siminn.is
Hvers vegna virkar SMS ekki hjá mér? (slóð)
Svar
Farðu í Skilaboðastillingar í símtækinu þínu. Stillingarnar eru á mismunandi stöðum eftir símtækjum.
Athugaðu hvort „Númer miðstöðvar“ (Service Center Number) sé ekki örugglega +3548900100 og að „Tegund skilaboða“ sé „Texti“.
Ef þessar stillingar eru í lagi er næsta skref að hafa samband við þjónustuver Símans 8007000.
Nánar
Númer miðstöðvar hefur það hlutverk að áframsenda skilaboðin þín í réttan síma. Ef rangt númer er í stillingunum hjá þér getur þú ekki sent skilaboð þar sem ekkert Númer miðstöðvar er til staðar til að taka við skilaboðunum.
Tegund skilaboða verður að vera „Texti“ því það er eina formið sem Númer miðstöðvar getur tekið á mótið og skilið.
MMS skeyti skilar sér ekki, hvað gæti verið að? (slóð)
Svar
Þá gæti verið að það vanti MMS-stillingar í farsíma sendanda og/eða móttakanda. Stillingar má nálgast á forsíðu www.siminn.is
