Hringiflutningur
Þú getur flutt hringingar sem berast í númer þitt í annað númer hvar sem er á landinu; í heimilissíma, farsíma, talhólf eða svarhólf. Við símtal gegnum hringiflutning eiga sér stað tvö símtöl. Sá sem hringir í númer með flutningi greiðir fyrir símtal í það númer en eigandi númersins sem flutt er úr greiðir fyrir flutninginn, nema flutt sé í talhólf.
| Tengjast | Aftengjast | Nánari lýsing | |
|---|---|---|---|
| Hringiflutningur, allar hringingar | *21* símanúmer# | #21# | Þú getur vísað öllum hringingum í númerið, í annað númer |
| Hringiflutningur, ef ekki er svarað | *61* símanúmer# | #61# | Þú getur vísað hringingum í númerið í annað númer ef ekki er svarað.* |
| Hringiflutningur, frá síma sem er á tali | *69* símanúmer# | #69# | Þú getur vísað öllum hringingum í númerið í annað númer ef það er á tali |
* Þú ræður hversu langur tími (5, 10, 15, 20, 25, 30 eða 35 sek.) líður áður en hringing flyst: *61*símanúmer*tími#
Veljir þú ekki tíma stillist sjálfkrafa á 15 sek.
