Ég þarf að flytja heimasíma, hvað geri ég?

Þjónustuver Símans og verslanir taka við öllum beiðnum um flutning á heimasíma. Þú þarft samt að vita hvaða símanúmer var í húsinu eða íbúðinni áður en þú fluttir í hana. Einnig  er hægt að ganga frá flutningi á heimasíma í gegnum Þjónustuvef.

Nánar
Eftir að beiðni berst getur flutningur á heimasíma tekið 3 til 5 virka daga á höfuðborgarsvæðinu en 5 til 10 virka daga í dreifbýli. Ástæðan fyrir því að við þurfum að fá uppgefið fyrra símanúmer íbúðar er sú að tæknimenn okkar þurfa að vita hvar þeir eiga að tengja heimasímann og það geta þeir séð út frá fyrra númeri húsnæðis.



Svaraði þetta spurningunni þinni?

Ef þú hefur frekari spurningar þá sendu þær til Þjónustuvers Símans eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.

Aðrir vefir