Skilmálar fyrir Betri leið GSM

1. Gildissvið

Skilmálar þessir kveða á um réttindi og skyldur viðskiptavina Símans í áskriftarleiðinni Betri leið GSM. Almennir skilmálar Símans um fjarskiptaþjónustu gilda þar sem ákvæðum þessara skilmála sleppir. Stangist ákvæði þeirra og ákvæði þessara skilmála á, skulu ákvæði þessara skilmála ganga framar.

Skilmálar þessir gilda frá og með 10. júní 2010

2. Innifalin notkun og afsláttarkjör í Betri leið GSM

Tiltekið magn símnotkunar er innifalið í Betri leið GSM. Fer það magn eftir því hvaða afsláttarleið er valin og verðskrá Símans vegna þeirra afsláttarleiða. Innifalda símnotkun má nýta þegar hringt er innanlands í talsíma og í GSM- eða NMT-kerfi Símans og/eða annarra innlendra símafyrirtækja, textaskeyti send í farsíma innanlands í kerfi Símans og/eða annarra innlendra símafyrirtækja.

Innifalin notkun verður ekki nýtt til að framkvæma símtöl af öðru tagi en greinir að ofan.

Ekki er unnt að nýta ofangreinda símnotkun þegar viðskiptavinur er staddur erlendis. Sé viðskiptavinur staddur erlendis gildir verðskrá Símans fyrir reikisímtöl.

Ef innifalin notkun er ekki fullnýtt í lok hvers mánaðar fyrnist hún og fellur þá niður réttur viðskiptavinar til að nýta hana. Öll notkun sem ekki er innifalin í Betri leið GSM samkvæmt ofangreindu er gjaldfærð í samræmi við verðskrá Símans.

3. Upplýsingar um notkun með SMS

Allir viðskiptavinir sem skráðir eru í Betri leið GSM (Góður, Betri, Bestur og Langbestur) fá sjálkrafa textaskeyti með upplýsingum um stöðu inneignar í hverri viku. Hægt er að afþakka sendingar slíkra textaskeyta á næsta sölustað Símans.

4. Skráning

Afgreiðsla skráningarumsókna hjá Símanum eða umboðsaðilum getur tekið allt að tvo virka daga. Viðskiptavinir fá senda tilkynningu með textaskeyti þegar skráningu er lokið. Skráning í nýja áskriftarleið verður virk fyrsta dag næsta mánaðar.



Aðrir vefir