Skilmálar fyrir 6 vinir óháð kerfi - Frelsi

1. Gildissvið

Skilmálar þessir kveða á um réttindi og skyldur viðskiptavina Símans í áskriftarleiðinni 6 vinir óháð kerfi. Almennir skilmálar Símans um fjarskiptaþjónustu gilda þar sem ákvæðum þessara skilmála sleppir. Stangist ákvæði þeirra og ákvæði þessara skilmála á, skulu ákvæði þessara skilmála ganga framar. Skilmálar þessir gilda frá og með 10. júní 2010.

2. Innifalin notkun og afsláttarkjör í 6 vinir óháð kerfi

Tiltekið magn símnotkunar er innifalið í 6 vinir óháð kerfi. Viðskiptavini er heimilt að hringja í sex símanúmer að eigin vali í samtals 60 mín/SMS á dag án viðbótargjaldtöku. Upphafsgjald er ekki greitt fyrir símtöl í ofangreind símanúmer. Ofangreind afsláttarkjör má nýta þegar hringt er eða SMS send til ofangreindra símanúmera. Ekki er unnt að nýta þau þegar viðskiptavinur er staddur erlendis. Sé viðskiptavinur staddur erlendis gildir verðskrá Símans fyrir reikisímtöl. Afsláttarkjörin verða ekki nýtt til að framkvæma símtöl af öðru tagi en greinir að ofan.

Ef innifalin notkun er ekki fullnýtt innan dagsins fyrnist hún og fellur þá niður réttur viðskiptavinar til að nýta hana. Öll notkun sem ekki er innifalin í 6 vinir óháð kerfi er gjaldfærð í samræmi við verðskrá Símans.

Viðskiptavini er heimilt að breyta einu sinni á mánuði þeim símanúmerum sem unnt er að hringja í og senda SMS til án viðbótargjaldtöku.

Önnur afsláttarkjör, eins og einn vinur sem fylgir rafrænum áfyllingum og Núllið, falla niður þegar viðskiptavinur kaupir 6 vini óháð kerfi.

3. Eitt mínútuverð

Viðskiptavinur greiðir sama mínútuverð vegna allra símtala sem framkvæmd eru í íslensk heimasíma- og farsímanúmer, að þjónustusímanúmerum undanskildum. Fyrir símtöl sem enda í öðrum símanúmerum greiðir viðskiptavinur í samræmi við verðskrá Símans. Slík símanúmer eru m.a. eftirtalin: símanúmer Já 118, 1818, 1811, 1444, símanúmer sem hefjast á 800, 900, auk annarra þjónustunúmera, farsímanúmer sem hefjast á 09, IMS-númer, auk allra gervihnattasímtala.

4. Skráning

Breyting á áskriftarleiðum verður virk innan sólarhrings.

 



Aðrir vefir