ADSL / VDSL

Af hverju mælist hraði minni þegar ég hala niður efni en áskriftarleiðin mín segir til um?  (slóð)

Svar

Hér liggur munurinn í mælieiningunum bits eða bytes. Hraðinn á internettengingum er oftast mældur og ávallt auglýstur í kílóbitum, en forrit líkt og Internet Explorer sýna oftast niðurhalshraðann í kílóbætum.

Tökum sem dæmi að þú sért með hraðann ADSL 8000 en sérð aðeins 950 kb í tölvunni þinni. Í einu bæti (byte) eru átta bitar (bits). Til þess að sjá hversu mikinn hraða þú ert að fá í kílóbitum þá margfaldarðu 950 með 8, sem gerir 7600 kílóbitar.

Þó þessi tali nái ekki alveg upp í 8000 þá er það ekki óeðlilegt, hraði tengingar aðilans sem þú ert að ná í gögnin frá er stundum ekki nægur, stundum sýna forrit eins og Internet Explorer ekki rauntímaupplýsingar heldur meðaltal miðað við nokkrar sekúndur og hraði sambands er reiknaður við bestu mögulegu skilyrði en undir venjulegum kringumstæðum eru sveiflur eðlilegar.


Ég er að fara að flytja og er með ADSL, þarf ég að gera einhverjar ráðstafanir?  (slóð)

Svar

Nei, ekki þarf að gera neinar sérstakar ráðstafanir þó þú sért með ADSL.
Þú getur beðið um flutning á þjónustuvefnum, í 8007000 eða í verslunum Símans.

Síminn er allt að 3 - 5 virka daga að flytja símann, ef gefið er upp númerið sem var fyrir og allt að 5 - 7 virka daga að flytja ADSL.

Passa verður upp á að tengja smásíur með sama hætti og á gamla staðnum.


Ég missi samband við þráðlausa netið, hvað er að?  (slóð)

Svar

Þráðlaust samband er háð því að lítil eða engin truflun sé á þeirri tíðni sem sambandið vinnur á. Hlutir sem geta truflað sambandið eru:

  1. Þráðlausir símar
  2. Önnur þráðlaus net
  3. Örbylgjuofnar (meðan þeir eru í gangi)
  4. Hreyfiskynjarar
  5. og þannig má lengi telja...

Einnig getur staðsetning beinis og tölvu átt hlut í sambandsleysinu. Þráðlaust net er hannað fyrir beina sjónlínu og það er erfitt að ná sambandi á milli hæða eða þegar eitthvað er fyrir, t.d. veggur, sófi eða aðrir hlutir sem geta deyft merkið.


Fylgir smásía eða splitter með endabúnaði?  (slóð)

Svar

Já, smásía fylgir með.


Hefur hraðinn minn einhver áhrif á verðþak í Internetáskrift?  (slóð)

Svar

Nei, svo á ekki að vera. Þakið er háð því hvaða internetáskrift þú ert í. Því meira innifalið gagnamagn sem þú greiðir fyrir á mánuði, því styttra er í verðþakið. 


Hefur Sjónvarp Símans um ADSL áhrif á Internethraða?  (slóð)

Svar

Sjónvarp hefur aðeins áhrif á Internethraða þeirra sem eru í Leiðum sem hafa 8mb/s eða meira í internetinu. Sem dæmi þá má nefna að ef kveikt er á myndlykli ná viðskiptavinir í Leið 3 allt að 12 Mb/s á Internetinu. Sjónvarpsrás tekur 4 mb/s og meðan hún er notuð eru bandbreiðustu gagnatengingarnar skertar sem því nemur til að viðhalda stöðugleika tengingarinnar.  Því hærri sem bitahraðinn er á hverri línu, því meiri truflun veldur hann á öðrum línum í sama streng.  Því myndi það valda óæskilegri keðjuverkun ef stór hluti lína væri nýttur fyrir mikinn bitahraða. Sjónvarpsrás er stöðugt óslitið álag.


Hvað get ég gert ef netið (ADSL) hjá mér virkar ekki?   (slóð)

Svar

Algengasta lausnin er að endurræsa beini og tölvu og athuga hvort samband komist ekki á við það. Ef um nýja tengingu er að ræða þarf að athuga hvort smásía sé tengd við beini. Smásíur eiga aðeins að tengjast við síma og beinir á að fá hreint samband við inntakið.

Athugið einnig hvaða ljós eru í gangi á beininum:

  • Ekkert ljós - Athuga hvort hann sé rétt tengdur við rafmagn eða hvort hann sé að fá nóg rafmagn.
  • Rautt/Appelsínugult Power-ljós (SpeedTouch 585) - Prufa að slökkva á honum í smá stund og kveikja svo aftur.
  • Sync/DSL ljós úti eða blikkandi - Athuga þarf hvort beinir sé rétt tengdur við inntak, prufa að taka alla síma úr sambandi og aðeins hafa beininn í sambandi (hann má ekki tengjast í gegnum smásíu).


Hvað getur valdið slitum á ADSL / VDSL tengingu?  (slóð)

Svar

Ef ADSL-beinirinn (e. router) er búin að vera í gangi í marga daga er gott að endurræsa hann. Það sama á við um sjónvarpsmyndlykil, en allur tölvubúnaður hefur gott af því að vera endurræstur af og til.

Beinirinn
Beinirinn (e. router) þarf að vera búinn nýjustu uppfærslunni. Uppfærslur eru mikilvægar þar sem þær eru sérstaklega gerðar til að bæta þjónustu og auka stöðugleika kerfisins. Hægt er að sækja nýjustu uppfærslurnar hér. Aðstoð er einnig veitt í 8007000

Ethernet-snúra RJ-45 - Rauðsnúra
Ethernet-snúrur (einnig nefndar tölvukapall, Cat5 og lan-snúra) eru oft gerðar á staðnum. Stundum eru tengin framan á snúrunni (glæru kubbarnir, RJ-45) ekki nógu vel hert og eiga vírarnir því til að renna úr tenginu.

  • Byrja á því að ýta snúrunni betur upp í tengin.
  • Til að ganga úr skugga um hvort vandamálið tengist snúrunni er gott að skipta um snúru ef mögulegt er.


Hvað þýðir að ADSL-þjónustan sé sítengd?  (slóð)

Svar

Sítengingin þýðir m.a. að greitt er fast gjald fyrir þjónustuna óháð notkunartíma. Því er hægt að hafa tenginguna í gangi tímunum saman án þess að mánaðargjaldið hækki.


Hvað þýðir „Allt að xMb hraði“ í interneti?  (slóð)

Svar

Auglýstur hraði er hámarkshraði við bestu mögulegu aðstæður. Síminn getur því miður ekki tryggt að allir þeir sem sækja um ADSL fái hámarkshraða.


Hvar sé ég hversu mikið gagnamagn ég er búin að sækja til útlanda?  (slóð)

Svar

Á þjónustuvefnum geturðu séð hversu mikið af erlendu efni þú hefur hlaðið niður af netinu. Ekki er krafist innskráningar, heldur þarf aðeins að vera í tölvu sem er tengd viðkomandi netáskrift.


Hvernig tengist ég þráðlausu neti?  (slóð)

Svar

Það þarf tvennt til þess að geta tengst þráðlausu neti. Þráðlaust netkort og beini sem styður þráðlaust samband.

Allir þráðlausir beinar senda frá sér svokallað "SSID" sem er einkennismerki þess beinis sem við á. Hægt er að sjá hvaða einkennismerki þinn beinir hefur með því að skoða undir hann.

Beinar frá Símanum eru læstir með svokölluðum "WEP"-öryggislykli. Hægt er að finna hann undir beininum við reit sem heitir "WEP (hex)". WEP-lykill er í flestum tilfellum 10 stafir og inniheldur ávallt tölustafi frá 0 til 9 og bókstafi frá A til F.

Hér er að finna leiðbeiningar fyrir tengingu á þráðlausu neti fyrir helstu stýrikerfi.


Skiptir máli fyrir gott ADSL-samband hvernig símaklær ég er með?  (slóð)

Svar

Mynd: RJ-11 - tvær svartar símaklærJá, RJ-11 tengi (sjá mynd) stuðla að stöðugra sambandi heldur en eldri símaklær.       

Gamaldags símaklær og ADSL- / VDSL-samband fara ekki alltaf vel saman, þar sem klærnar liggja ekki jafn þétt að vírum í símadós og glæru kubbalöguðu tengin RJ-11 gera. Slíkt getur valdið titringi/sveiflu á símalínunni og þannig slitið samband milli beinis og símstöðvar. Lausnin við þessu er að skipta um símakló/símadós eða uppfæra tengin í RJ-11.


Það er rautt/appelsínugult ljós á beininum mínum og ég kemst ekki á netið, hvað er að?  (slóð)

Svar

Þetta kemur fyrir þegar rafmagnið við beininn dettur út í skamma stund. Það ætti að vera nóg að slökkva á honum og kveikja síðan aftur eftir nokkrar mínútur. Þetta má reyna í nokkur skipti, hafa verður í huga að þegar kveikt er á beini er hann rúma mínútu að komast í gang.

Ef vandræðin eru viðvarandi skaltu hafa samband við Þjónustuver Símans í síma 800 7000.

Aðrir vefir