ATA box - leiðbeiningar um uppsetningu

Hægt er að nota tölvusímann með hefðbundnu POTS símtæki en til þess þarf að nota svo til kölluð ATA Box. Síminn selur eina tegund af þessum boxum frá Linksys. Hér eru leiðbeiningar hvernig boxið er sett upp svo að hægt sé að nota hefðbundið POTS símtæki við tölvusímann

1 Innihald

Auk þessara leiðbeininga innihalda umbúðirnar utan um Tölvusímaboxið eftir- farandi búnað, sem nauðsynlegur er til að geta tengt Tölvusímann við boxið.

  • Boxið sjálft
  • Spennubreytir, 100-240 Volt
  • Netsnúra (blá)
  • Símasnúra (grá)


2 Tengingar

Byrja skal á því að tengja boxið við rafmagn með spennubreytinum. Því næst skal tengja netsnúruna í blá tengið á boxinu (Internet) og hinn endann við beini (router) eða í nettengil sem tengdur er við Internetið.

Að lokum þarf að tengja hefðbundið símtæki græna tengið á boxinu (Phone 1) með símasúru.

Til þess að geta sett boxið upp verður tölva að vera tengd sama beini eða neti (með snúru eða þráðlaust) og boxið er tengt við.


3 Leiðbeiningar

  • Til að komast inn á boxið þarf að slá inn 4 stjörnur (****) á takkaborði símans sem er tengdur við boxið.
  • Því næst heyrist rödd sem biður um að valin sé aðgerð (athugið að röddin talar ensku). Þá á að slá inn á takkaborði símans eftirfarandi skipun: 110# Hægt er að endurtaka aðgerðina til að hlusta aftur.
  • Við þetta les röddin upp IP-tölu sem notuð er til að tengjast boxinu (gott er að skrifa töluna niður). Dæmi um IP-tölu: 192.168.10.1
  • Nú þarf að fara í tölvuna sem er tengd við sama net og boxið og opna vafra, t.d. Internet Explorer eða Firefox.
  • Næst er IP-talan sem lesin var upp slegin inn í vafrann. Fyrir framan IP-töluna á að standa http://

Athugið að tölvan þarf að vera tengd sama neti og boxið (í sambandi við sama router/beini).

Ef rétt IP tala var valin og tölvan er tengd sama neti og boxið, þá opnast vefsíða fyrir uppsetningu á boxinu.

Hérna þarf að smell á tengil ofarlega til hægri þar sem stendur Admin login

Næst á að smella á t„Switch to advanced view“.

Því næst er smellt á „Provisioning“.

Í gluggann „Profile Rule“ þarf að setja eftirfarandi slóð inn: http://bria.siminn.is/atabox/linksys_POP2.txt

Næst er valið „Switch to basic view“


Því næst er smellt á „Line 1“. Hér er slegið inn símanúmer (User ID) og lykilorð (Password) og því næst „Save Settings“, neðst á síðunni. Nú ætti Tölvusímaboxið að vera klárt til notkunar.

Aðrir vefir