Netnotkun

Ég missi samband við þráðlausa netið, hvað er að?  (slóð)

Svar

Þráðlaust samband er háð því að lítil eða engin truflun sé á þeirri tíðni sem sambandið vinnur á. Hlutir sem geta truflað sambandið eru:

  1. Þráðlausir símar
  2. Önnur þráðlaus net
  3. Örbylgjuofnar (meðan þeir eru í gangi)
  4. Hreyfiskynjarar
  5. og þannig má lengi telja...

Einnig getur staðsetning beinis og tölvu átt hlut í sambandsleysinu. Þráðlaust net er hannað fyrir beina sjónlínu og það er erfitt að ná sambandi á milli hæða eða þegar eitthvað er fyrir, t.d. veggur, sófi eða aðrir hlutir sem geta deyft merkið.


Get ég fengið nánari sundurliðun á niðurhali en þá sem er í boði á þjónustuvefnum?  (slóð)

Svar

Já, hægt er að fá svokallaða „IP sundurliðun“ en hún kostar 10.000 kr.

Ef í ljós kemur að ástæðan fyrir miklu niðurhali sé á ábyrgð Símans, þá þarftu ekki að bera neinn kostnað, ef hins vegar kemur í ljós að hún sé vegna eðlilegrar notkunar ber viðkomandi rétthafi kostnaðinn.

Ef þú vilt fá „IP sundurliðun“ þá kemur þú við í næstu verslun Símans og fyllir út eyðublað.


Getur niðurhal frá netþjóni með endingunni .is verið frá útlöndum?  (slóð)

Svar

Já, við gagnamælingu er ekki farið eftir endingunum .is eða .com o.s.frv. Heldur er farið eftir staðsetningu netþjónsins.

Netþjónar erlendis geta borið endinguna .is og öfugt.

Hægt er að athuga hvort netþjónn sé hýstur erlendis eða innanlands í leit hér á vefnum


Getur niðurhal frá netþjóni með endingunni .net eða .com verið innanlands?  (slóð)

Svar

Já. Við gagnamælingu er ekki farið eftir endingunum .is eða .com o.s.frv. Heldur er farið eftir staðsetningu netþjónsins.

Netþjónar erlendis geta borið endinguna .is og öfugt.

Hægt er að athuga hvort ákveðinn netþjónn er hýstur erlendis eða innanlands á Siminn.is


Hvað er eldveggur?  (slóð)

Svar

Eldveggur er forrit sem vaktar þær tengingar sem fara út og inn í tölvuna. Eldveggurinn leyfir ekki tengingar sem eru skilgreindar óviðkomandi.

Eldveggir eru oftast forstilltir til þess að vita hvaða samskipti eru óæskileg og hver ekki, en oft kemur fyrir að nýr eða óþekktur hugbúnaður ætlar að ná sambandi við netið í fyrsta skiptið. Þá spyr eldveggurinn notandann hvaða ráðstafanir skuli gera, hvort eigi að leyfa samskiptin eða ekki.

Mælt er með að nýta sér eldvegg til þess að auka öryggi á netinu, en einsog með allar varnir, þá er best að fara varlega í öllum samskiptum á netinu.

Flest stýrikerfi hafa innbyggðan eldvegg og einnig er hægt að fá eldvegg í hin ýmsu forrit, t.d. í Öryggispakka Símans


Hvað eru póstþjónar?  (slóð)

Svar

Póstþjónar eru þeir miðlarar sem taka á móti pósti fyrir hönd notanda og þegar notandi sendir frá sér póst fer það í gegnum póstþjón einnig.

Ýmsar leiðir eru til að hafa samskipti við póstþjóna en sú algengasta er að nota póstforrit líka og Outlook, Outlook Express og Thunderbird. Hjá Símanum er einnig í boði svokallað vefpósthús.

Póstþjónar eru millibils stopp fyrir þann póst sem sendur er á notanda. Því er það þjóninn sem geymir þau skeyti sem notandi er ekki búin að ná í, og þegar notandi nær í póstinn tæmast þau af þjóninum nema það sé sérstaklega stillt til að geymast þar inni.


Hvað geri ég ef ég kemst ekki á heimasíðusvæðið mitt?  (slóð)

Svar

Ef þú nærð ekki að komast inn á heimasíðusvæðið þitt skaltu athuga eftirfarandi:

  • Ertu örugglega búinn að biðja um að heimasíðusvæðið þitt verði opnað?
  • Ef þú hefur beðið um Frontpage-aðgang að heimasíðusvæðinu þínu virkar ekki að tengjast því með FTP-forriti.
  • Ertu að reyna að tengjast réttum FTP-þjóni? (Réttur þjónn fyrir simnet.is er "simnet.is")
  • Virkar Netið hjá þér, geturðu skoðað heimasíður og náð í tölvupóst?
  • Ertu örugglega að nota rétt notandanafn og lykilorð að heimasíðusvæðinu? Athuga ber sérstaklega hvort þú þú sért nokkuð að skrifa þau inn með stórum stöfum


Hvar get ég fundið internet lykilorðin mín?  (slóð)

Svar

Til þess að vernda öryggi lykilorðs þíns getur þú ekki fengið það uppgefið í gegnum síma. Þú getur hins vegar nálgast það inni á þjónustuvefnum. Smelltu hér til að skoða lykilorð

Einnig er hægt er að fá lykilorðið sent í bréfapósti á heimili rétthafa, eða að þú  getur komið í verslun Símans og fengið lykilorðið uppgefið gegn framvísun skilríkja.


Hvernig er erlent niðurhal mælt?  (slóð)

Svar

Allt efni sem sótt er frá vefþjónum sem staðsettir eru erlendis telst vera erlent niðurhal.

Þótt vefþjónn hafi endinguna .is gæti hann verið hýstur erlendis. Athugaðu hér hvort vefþjónn sé staðsettur á Íslandi eða erlendis.

Allt efni sem verið er að skoða á erlendum síðum á internetinu hvort sem að það er heimasíða, myndband eða tónlist telst sem niðurhal þar sem að allt það efni sem að tölva birtir á tölvuskjá eru gögn sem að tölvan verður að hala niður og vinna úr til að geta birt á skjánum.

Í stuttu máli er semsagt ekki hægt að vafra um Internetið án þess að vera að niðurhala.


Í hvaða tilfellum þarf ég fasta IP-tölu?  (slóð)

Svar

Hinn almenni Internetnotandi þarf ekki á fastri IP-tölu að halda.

Föst IP-tala kemur einungis að gagni ef notandi rekur einhvers konar þjónustu á innra neti sínu sem aðilar úti á Internetinu þurfa að hafa greiðan aðgang að.

Þú getur óskað eftir fastri IP-tölu með því að hringja í þjónustuveri Símans í síma 800-7000.


Það er rautt/appelsínugult ljós á beininum mínum og ég kemst ekki á netið, hvað er að?  (slóð)

Svar

Þetta kemur fyrir þegar rafmagnið við beininn dettur út í skamma stund. Það ætti að vera nóg að slökkva á honum og kveikja síðan aftur eftir nokkrar mínútur. Þetta má reyna í nokkur skipti, hafa verður í huga að þegar kveikt er á beini er hann rúma mínútu að komast í gang.

Ef vandræðin eru viðvarandi skaltu hafa samband við Þjónustuver Símans í síma 800 7000.

PSTN/ISDN

Aðrir vefir