Slökktu á beini þegar hann er ekki í notkun
Ef slökkt er á beini þegar hann er ekki í notkun kemur það í veg fyrir að utanaðkomandi geti hakkað sig inn á beininn. Takkinn er aftan á beininum.
Eigið aðgangsorð og heiti á þráðlausa netið
Fyrirframstilling beinis er SSID(Service Set identifier) og aðgangsorð Encryption key.
SSID og Encryption Key verður að breyta inn á beininum.
- Tengdu tölvuna með snúru við beini
- Sláðu inn slóðina 192.168.1.254
- skráðu þig inn á beini með notendanafninu admin og lykilorði admin
- Smelltu á Home Network
- Smelltu á WLAN
- Efst uppi hægra meginn smellirðu á Configure
- Undir SSID skrifarðu nafnið sem þú vilt að birtist á þráðlausa netinu, ath má ekki innihalda íslenska stafi
- Undir WEP encryption skal rita þann lykil nota á þegar tengst er þráðlausa netinu. Lykillinn verður að vera 10 stafir, ath. einungis bókstafirnir A til F og tölustafir koma til greina.
Breyta úr WEP í WPA / WPA2
Einnig er mögulegt að breyta öryggislykli til að auka öryggi. Nota má WEP (beinir er forstilltur á það) WPA eða WPA2 (aðeins tölvur og netkort sem komu út eftir árið 2006 styðja WPA2).
- Til að breyta í WPA eða WPA2 lykil er smellt á "WPA-PSK Encryption".
- Næsta skref er að Eftir að þú ert búin að hakka við WPA þá getur þú nota flettigluggann til að velja hvort stillt verði á WPA eða WPA2.
- WPA lykill má vera frá 8 stöfum upp í 64. Ekki skal nota séríslenskir stafi í WPA lykil.
Slökkva á auðkenni þráðlausa netsins
Til að auka öryggi þráðlausa netsins er mögulegt að slökkva á auðkenni. Þetta er gert með því að gera eftirfarandi aðgerðir í þessari röð:
- Tengja tölvuna með snúru við beini
- Slá inn slóðina 192.168.1.254
- Skrá tölvuna inn á beini með notendanafninu admin og lykilorði admin
- Smella á Home Network
- Smella á WLAN
- Efst uppi hægra meginn er smellt á Configure
- Taka hakið úr "Broadcast Network Name"
- Smella á Apply
Þegar tengja á á þráðlausa netið aftur eftir þessa aðgerð þarf að tengja það handvirkt með því að smella á "Setup á Wireless Network" og setja þar handvirkt inn SSID og aðgangsorðið að tengingunni.
