Vefpóstur

Innskráning

Þegar veffang Vefpóst Símans, http://postur.simnet.is er valið opnast gluggi með innskráningu, þar sem þú slærð inn um netfangið þitt og lykilorð að pósthólfinu.


Innhólf

Í Innhólf fer allur tölvupóstur sem sendur er til þín. Til að opna póst smellir þú einfaldlega á hann. Til að eyða pósti úr pósthólfinu skal smella á póstinn og velja hnappinn Eyða sem er staðsettur fyrir ofan pósthólfið.
Einnig er hægt að hægri-smella á viðkomandi póst og velja Eyða. Athuga ber að pósthólfið þitt hefur takmarkaða stærð (venjulega 1 GB) og því er gott að eyða pósti með reglulegu millibili.


Vefpósthúsið póstinum skiptir póstinu niður á blaðsíður með 25 pósta á hverri blaðsíðu. Til þess að skipta milli blaðsíðna eru notaðar örvarnar sem staðsettar eru ofarlega í hægra horni vefpósthússins.


Búa til nýjan póst

Til að skrifa nýjan tölvupóst skal smella á hnappinn Nýtt og velja Nýr póstur.
Þegar skeyti er sent fer það í möppu í pósthólfinu þínu sem heitir Sent. Með því að fara í þá möppu geturðu skoðað þau bréf sem þú hefur sent úr vefpóstinum.

Hægt er að vista tölvupóst án þess að senda hann. Það er gert með því að velja Vista drög. Eftir það er tölvupósturinn aðgengilegur í möppunni Drög, og hægt að nálgast hann til að breyta og/eða senda síðar.


Viðhengi fest við bréf

Til þess að festa sköl við póst sem á að senda skal smella á „Bæta viðhengi við“ í valstikunni


Eftir að smellt er á „Bæta við viðhengi“ birtist sprettigluggi þar sem velja á hvaða skrá eða skrár á að festa við póstinn.

Þegar smellt er á „Browse“ birtist gluggi þar sem að velja á skrá til að festa við póstinn. Finnið skránna sem að senda á og smellið á „Ok“ þá birtist slóð í reitnum „Hengja við“ sem segir vefpósthúsinu hvaða skrá á að senda.

Endurtakið þetta skref fyrir öll skjöl sem á að senda með póstinum og ljúkið me því að smella´a „Hengja við“Hafa ber í huga að því stærri sem skráin er því lengri tíma tekur það vefpósthúsið að festa skránna við póstinn og senda hann.

Netfangaskrá

Vefpósturinn býður upp á fullkomna netfangaskrá. Til að komast í Netfangaskrána smellir þú á flipann Netfangaskrá efst.

Til að búa til nýjan tengilið er smellt á hnappinn Nýtt, og Nýr tengiliður valinn. Fornafn, eftirnafn og miðnafn sett inn ásamt netfangi. Að lokum er vistað. Einnig er hægt að hægri-smella á tölvupóst í innhólfi og velja „Bæta við tengiliði“, þá er nafn og netfang útfyllt. Að lokum er vistað.

Dagatal

Vefpóstinum fylgir dagatal.

Dagatalið er hægt að nýta sér til þess að halda utan um fundi, læknistíma, klippingu og marg annað með því að smella á viðeigandi dagsetningu og tíma í dagatalinu og fylla inn í viðeigandi upplýsinga reiti.
Ef áminning er sett á ber að hafa í huga að hún virkar bara ef notandi er skráður inn á vefpóstinn sinn á þeim tíma sem að áminningin verður virk.

Verkefni

Hér er möguleiki á að halda utan um verkefni sem verið er að vinna. Verkefni er skráð með því að smella á „Nýtt“, fyllt er í þá valmöguleika sem á að nota og smellt er á „Vista“ til að loka.
Hægt er að bæta viðhengjum við verkefnið, t.d. Exel skjali, myndbroti, hljóðskrá o.s.frv.

Minnisblöð

Hér er hægt að punkta niður allt það sem ekki á heima í verkefnum eða á dagatalinu. Þegar smellt er á „Nýtt“ kemur upp viðmót sem svipar mjög til viðmóts flestra ritvinnslu forrita.

Innihald minnisblaðsinns er skrifað þar inn og svo er smellt á „Vista“. Vefpósthúsið heldur svo utan um öll minnisblöð og hægt er að bæta við, eyða eða breyta þeim eftir á. Ef breytingar eru gerðar á skjali og það vistað mun vefpósthúsið merkja skjalið með dagsetningunni sem að breytingn átti sér stað og sýna talningu yfir það hversu oft er búið að breyta og vista skjalinu.

Skjalataska

Hér er hægt að geyma skrár af öllum gerðum. Er þetta sérstaklega þægilegt ef að geyma á viðkvæm skjöl sem ekki meiga glatast t.d ef að harður diskur í tölvu eyðileggst.
Skrám er hlaðið upp með því að smella á „Nýtt“ eða „Hlaða upp skrá“, smellt er á „Browse“ og skráin fundin. Eftir það er smellt á „OK“.
Gott er að hafa í huga að því stærri sem skráin er því lengur getur tekið að hlaða henni upp.

Einnig bar að vara sig á því að þær skrár sem fara inn á vefpósthúsið taka pláss beint af pósthólfinu. T.d ef að pósthólf er tómt og hlaðið er upp skrá sem er 1GB að stærð að þá er pósthólfið orðið fullt og tekur ekki lengur við póst.

Tungumáli vefpósthússins breytt

Vefpósturinn getur verið á nokkrum tungumálum. Sjálfvalið tungumál er íslenska. Til að breyta tungumáli vefpóstsins er farið í Stillingar og flipinn Almennt valinn.

Valmöguleikar eru sýndir í flettiglugganum Tungumál. Breytingin verður sýnileg næst þegar þú skráir þig inn.

Aðrir vefir