Reikningar

Hvað er kreditnóta?  (slóð)

Svar

Kreditnóta er inneign þín hjá símanum. Hægt er að setja kreditnótu upp í næsta reikning eða fá hana lagða inn á bankareikninginn þinn ef þú ert skuldlaus við símann.


Hvert tilkynni ég breytt heimilisfang?  (slóð)

Svar

Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver Símans í s: 8007000.


Get ég séð yfirlit yfir ógreidda reikninga?  (slóð)

Svar

Hægt er að skoða alla ógreidda reikninga á þjónustuvefnum og hægt að sjá þar t.d ocr rönd á greiðsluseðli til að geta greitt annað hvort í heimabanka eða banka.


Hvernig/hvar er hægt að skoða afslætti?  (slóð)

Svar

Sundurliðun sýnir enga afslætti. Neðst á símareikningi kemur fram heildarafsláttur vegna símanotkunar.


Hvernig er afsláttur vegna Betri leiða í GSM reiknaður út á reikningi?  (slóð)

Svar

Afsláttur tekur mið af meðalverði símtala yfir allann mánuðinn en ekki fyrstu mínúturnar sem hringt er. Til að útskýra betur þá er eftir mánuðinn skoðuð heildarnotkun og kostnaður í símtöl innan afsláttar (s.s símtöl í heimasíma og gsm síma og sms) og svo er meðaltalið af verðinu reiknað út og það s.s er mínútuverðið sem er farið eftir þegar afsláttur er reiknaður


Hvar sé ég afslátt vegna fjölskylduáskriftar?   (slóð)

Svar

Heildarafsláttur vegna Núllsins sést við afsláttar liðinn fyrir hvert númer. Ef sundurliðun notkunar er skoðuð þá sést símtalið með fullu verði en þó stendur "Símtal í Núllinu" á reikningum sjálfum eru svo símtölin dregin frá sem eru innan Núllsins. Í Núllinu er eingöngu afsláttur af símtölum en ekki sms (skilaboðum)


Hvernig breyti ég greiðslumáta?  (slóð)

Svar

Ef þú vilt greiða með greiðslukorti og vera í boðgreiðsluviðskiptum þá eru 3 leiðir í boði.

1. Þú getur haft samband við þjónustuver Símans í síma 8007000 
2. Þú getur skráð þig inn á þjónustuvef Símans og skráð þig í boðgreiðslur þar.
3. Þú getur sent okkur tölvupóst á netfangið 8007000@siminn.is* 

*í tölvupóstinum þarf að koma fram: Nafn rétthafa, kennitala, heimilisfang, símanúmer, þjónusta sem á að fara á kortið (t.d heimasími, gsm, sjónvarpsþjónusta),kortanúmer og gildistími korts.



Til að skrá sig í og úr beingreiðslum verður þú að hafa samband við viðskiptabankann þinn

 

 


Hvernig sæki ég um netreikning/Hvernig losna ég við útskriftargjaldið ?  (slóð)

Svar

Hægt er að sækja um netreikning og þar með losna við útskriftargjaldið á siminn.is eða í gegnum þjónustuvef Símans með lykilorði. Einnig er hægt að hringja í Þjónustuver Símans 8007000 og óska eftir skráningu í netreikning.

Aðrir vefir