Dúett leiðbeiningar

Eiginleikar

  • Dúett þjónustan í Símavist er frábær leið til þess að tengja saman GSM símann og borðsímann.
  • Nú þarft þú ekki að gefa upp persónulegt GSM símanúmer í vinnunni.
  • Þú stýrir því hvenær GSM síminn hringir með borðsímanum og getur auðveldlega flutt samtal á milli borðsímans og farsímans.
  • Einnig getur þú látið borðsímanúmerið þitt birtast þegar þú hringir úr farsímanum.

Hvað þarf?

  • Virkja Dúet sérþjónustuna hjá notendum. Kerfisstjóri fyrirtækis eða Þjónusta Símans getur virkjað sérþjónusturnar "Broadworks Anywhere" og "In-Call Service Activation" hjá notendum .
  • Símanúmer Dúet símagáttar fyrirtækisins.

Helstu aðgerðir

Aðgerð Lýsing
Færa símtal úr GSM í borðsíma

Þegar Dúett hringingu hefur verið svarað í GSM símanum má færa símtalið án þess að viðmælandi verði þess var.

  • Hringið í *35 úr borðsímanum
Láta borðsímanúmer birtast þegar hringt er úr GSM

Þú getur hringt út um símagáttina ef þú vilt ekki að persónulegt GSM símanúmer birtist.

  • Hringið í skammval 6 () og bíðið eftir són.
  • Veljið símanúmer eða stuttnúmer.
Gefa símtal áfram úr GSM síma

Þegar Dúett símtali hefur verið svarað í GSM símanum má gefa símtalið áfram á eftirfarandi hátt.

  • Velja "##" til þess að fá aðra línu
  • Velja símanúmer eða stuttnúmer sem flytja á í
  • Kynna símtalið og leggja á til að flytja samtalið
Þriggja manna tal úr GSM

Þegar Dúett símtali hefur verið svarað í GSM símanum má bæta inn þriðja aðlia á eftirfarandi hátt.

  • Velja "##" til þess að fá aðra línu
  • Velja símanúmer sem á að tengja inn
  • Velja "##" til þess að tengja alla 3 saman
Virkja Dúett samhringingu GSM

Ef Dúett samhringing hefur verið skilgreind má afvirkja samtímahringinguna úr GSM símanum

  • Hringið í skammval 7. (*28)
Afvirkja Dúett samhringingu GSM

Ef Dúett samhringing hefur verið skilgreind má afvirkja samtímahringinguna úr GSM símanum

  • Hringið í skammval 7. (#28)

Dúett stillingar

Stillingar í Stikunni - Auðvelt er að nálgast helstu stillingar fyrir Dúett úr Stikunni. Veljið "Stilla ..." til þess að komast helstu stillingar.

Dúett hringing er virk ef hakað er við símanúmerið.

  • Smellið á "Skoða tiltækar símagáttir" til þess að sjá símanúmer sem nota á fyrir 2ja þrepa hringingu.
  • Haka við ef þú vilt svara í farsímann þegar hringt úr Stikunni, Outlook eða af vefsíðu. Athugið að ef þetta er virkt þá virkar
    ekki "auto answer" í borðsímanum.
  • Haka við til þess að ekki komi sjálfvirkt svar úr talhólfi eða þegar slökkt er á farsíma eða hann utan þjónustusvæðis.
  • Haka við símastýringu ef nota á '##' til gefa símtal.

"Virkja hindrun á flutningi" og "Útfarandi aukanúmer" á ekki að nota.

Stillingar í vefgátt

Tímastýringu á Dúett þjónustunni þarf að virkja í gegnum vefgáttina. Til þess að komast í vefgáttina er einfaldast að smella á
"skráargatið" í Stikunni (ekki í Outlook).

Þegar vefgáttin hefur verið opnuð í vafra (Firefox eða Internet Exporer) skal velja "Call Control" vinstra megin á síðunni

  • Smellið á "Broadworks Anywhere" til þess að komast í Dúett
    stillingarnar.
  • "In-Call Service Activation" þarf að vera virkt ef nota á "##"
    möguleikann.

Hér að ofan er dæmi um reglu sem lætur gsm símann hringja með borðsímanum fyrir öll símtöl sem eru utan fyrirtækis á vinnutíma. Hér hefur áður verið skilgreind tímastýringin "Virkir dagar 8:30-17:00" Hægt að skilgreina fleiri en eina reglu fyrir Dúett samhringingu. Hér að neðan má sjá að GSM síminn hringir alltaf, óháð tímastýringu þegar forstjórinn hringir úr símanúmerunum 5555555 og 8888888.




Stilla skammval í GSM

Við mælum með að nota skammval í GSM símanum fyrir algengustu Dúett aðgerðir.


Skammval Lýsing
6

Símagátt
Setjið símanúmer símagáttarinnar í skammval. Hægt að sjá hvaða símanúmer á að nota með því að smella á "Skoða tiltækar símagáttir" í Stikunni.

7

Virkja Dúett
Setjið eftirfarandi:p*28# sem skammval.

8

Afvirkja Dúett
Setjið eftirfarandi: p#28#.

9

Færa símtal úr borðsímanum
Setjið eftirfarandi: p*35


ATH!  "p" sem notað er í skammvali 7-9 hér að ofan merkir stutt hlé í hringingunni. (Á Nokia símum færst "p" með því að ýta þrisvar sinnum á "*" hnappinn)

Skammval í borðsíma
Í borðsímanum er ráðlegt að stilla skammvalshnapp fyrir aðgerðina að sækja Dúett símtal úr GSM símanum (*35).

Í Cisco SPA símum sem sækja stillingar miðlægt ætti að birtast "Dúett" hnappur ef símtali hefur ekki verið svarað (missed call).
Þessi hnappur flytur símtal úr GSM síma í borðsímann.


Takmarkanir

  • Athugið að Dúett virkni í GSM símanum virkar aðeins fyrir símtöl sem hringja með borðsímanum. Ef hringt er beint í GSM
    símanúmer notanda þá er ekki hægt að flytja símtal í borðsímann eða gefa áfram. Sama á við ef hringt er beint úr GSM símanum en ekki í gegnum símagáttina.
  • Ekki er hægt að hringja beint úr símaskrá GSM símans þegar hringt er í gegnum símagáttina.
  • Ekki hægt að hringja út úr borðsímanum á meðan notandi er í Dúett GSM símtali, ef notuð er "símastýring Símavistar" BroadWorks-based Call Control Services

Stjörnukóðar

Eftirfarandi kóðar eru notaðir fyrir Dúett þjónustuna.

Kóði Lýsing
*35

Sækja Dúett símtal
Flytja símtal á milli símtækja. Ef hringt er úr GSM síma þá þarf að nota 2ja þrepa innval

*28

Virkja Dúett
Virkja Dúett síma, nauðsynlegt að nota 2ja þrepa innval.

#28

Afvirkja Dúett
Aftengja Dúett síma, nauðsynlegt að nota 2ja þrepa innval.

##

Símtalsstýring
Notað við hringiflutning og þriggja manna tal í GSM

Aðrir vefir