Að hvaða leyti eru stafrænu myndlyklarnir ólíkir hliðrænu? (slóð)
Svar
Stafrænu myndlyklarnir eru sérhæfur tölvubúnaður sem hægt er að aðlaga að nýrri þjónustu með hugbúnaðarbreytingum. Allri vinnslu er stýrt af hugbúnaði. Þessi hugbúnaður er uppfærður eftir þörfum.
Þetta gerist sjálfvirkt og notendur þurfa ekki að gera neitt. Hliðrænu myndlyklarnir geta aðeins hleypt þeim stöðvum í gegn sem eru í áskrift.
Af hverju brotnar mynd upp í ferninga í sjónvarpi um breiðband? (slóð)
Svar
Möguleg orsök:
Liggja stöðvarnar saman (hlið við hlið) á myndlyklinum. Ef svo er, eru þær væntanlega sendar út á sömu tíðni. Vandamálið gæti því tengst tengingum, lélegri loftnetssnúru eða lélegu loftnetskerfi innanhúss.
Ef vandamálið er nýbyrjað á einstökum stöðvum er möguleiki að tímabundin bilun sé í útsendingu.
Lausn:
Til að sannreyna hvort vandamálið tengist innanhússkerfinu er ágætt að prófa:
- Að skipta um loftnetssnúru. Léleg lofnetssnúra getur valdið því að myndin brotni upp í ferninga á nokkrum stöðvum.
- Að taka önnur rafmagnstæki úr sambandi, eins og myndbandstæki, DVD-spilara og aðra myndlykla.
- Tengja einungis loftnetssnúru úr vegg yfir í myndlykil og SCART-tsnúru úr myndlykli í sjónvarp.
- Þetta er ágæt leið til að útiloka að vandamálið tengist tengingunum.
Af hverju fæ ég ekkert hljóð á nokkrum sjónvarpsstöðvum í breiðbandinu? (slóð)
Svar
Möguleg orsök:
- Vandamálið gæti tengst hljóðstillingum bæði á sjónvarpstæki og myndlykli.
- Einnig getur lélegt eða laust scarttengi haft áhrif á hljóðið.
- Getur verið tímabundin bilun í sjónvarpsrás.
- Athugið hvort það hafi nokkuð verið stillt á "mute" (hljótt), annað hvort á sjónvarpi eða myndlykli.
- Prófið að hækka með volume-takkanum bæði á myndlykli og sjónvarpi.
- Athugið hvort scarttengið sé nægilega vel sett í samband. Prófið annað scarttengi ef hitt er orðið lélegt.
Af hverju fæ ég skilaboðin „Stöð ekki í áskrift eða ekki tiltæk í augnablikinu“ í sjónvarpinu? (slóð)
Svar
Möguleg orsök:
Skilaboðin geta komið ef smartkortið snýr öfugt í myndlyklinum. Einnig er möguleiki að stöðin sé ekki í áskriftarpakkanum eða ekki í útsendingu.
Lausn:
- Snúið smartkortinu við. Athugið að gylti flöturinn fer ávalt fyrst inn í raufina.
- Athugið hvort réttur áskriftarpakki sé skráður á kortið með því að hafa samband við 8007000.
Af hverju fæ ég svartan skjá á myndlykli, engan upplýsingarborða eða aðalvalmynd? (slóð)
Svar
Möguleg orsök:
Yfirleitt tengist vandamálið lélegu eða lausu scarttengi.
- Einnig gæti verið slökkt á myndlyklinum eða ekki stillt á rétta rás á sjónvarpinu.
- Ef klukkan er á skjánum á myndlyklinum, þá er slökkt á honum.
- Ertu örugglega með stillt á breiðbandsrásina á sjónvarpinu? Ef myndlykilinn er tengdur með scarttengi yfir í sjónvarp, ætti rásin að finnast á AV rás á sjónvarpstækinu.
- Prufið að ýta scarttenginu betur í samband bæði í myndlyklinum og sjónvarpinu. Ef það virkar ekki getið þið prófað annað scarttengi.
Af hverju fæ ég „Ekkert sjónvarpsmerki“ á öllum sjónvarpsstöðvum? (slóð)
Svar
Möguleg orsök:
Þetta þýðir að að myndlykillinn nær engu merki frá lofnetstenglinum innanhúss. Ástæðurnar geta verið nokkrar:
- Að ekki sé búið að tengja breiðbandið innanhúss.
- Að magnarinn sem dreifir merkinu innanhúss sé bilaður.
- Að loftnetssnúran sé orðin léleg.
- Að loftnetssnúran sé í vitlausu tengi aftaná myndlykli.
Til að sannreyna hvort vandamálið tengist innanhússkerfinu er ágætt að prufa eftirfarandi:
- Byrjið á því að skipta um loftnetssnúru frá vegg yfir í myndlykil.
- Athugið hvort loftnetssnúran sé tengd í vitlaust tengi aftaná myndlykli?
- Eru tengingarnar vitlausar? Prófið að taka önnur tæki úr sambandi, t.d. DVD-spilara, myndbandstæki, aðra myndlykla o.s.frv. Önnur tæki gætu verið að draga úr breiðbandsmerkinu.
- Ef tengingar og loftnetssnúra eru í góðu lagi, bendum við þér á að hafa samband við rafvirkja til að athuga loftnetskerfið innanhúss.
Af hverju koma skrítnir litir eða línutruflanir í gegnum myndlykilinn? (slóð)
Svar
Möguleg orsök:
- Undir flestum kringumstæðum tengjast skrítnir litir biluðu eða lausu SCART-tengi.
- Athugið hvort SCART-tengið sé nægilega vel sett í samband.
Ef svo er, prófið annað SCART-tengi.
Get ég breytt uppröðun rása á myndlyklinum? (slóð)
Svar
Með því að ýta á gula hnappinn er hægt að raða rásunum upp í stafrófsröð.
Einnig er hægt að skipta um númer á rásunum með því að fara í Setup/Stöðvalisti á fjarstýringu. Rásaröðin breytist þó ekki við það.
Einnig er hægt að setja upp lista með eftirlætisrásum (FAV) og þeim má svo ráða upp að vild.
Hérer hægt að nálgast fylgiskjal fyrir Handan myndlykla leiðbeiningar fyrir eftirlætisrásir eru á blaðsíðu 8 og 9.
Get ég haldið áfram með gömlu breiðbandsáskriftina? (slóð)
Svar
Já, Síminn mun halda áfram að reka hliðrænt sjónvarpskerfi að sinni.
Ekki er þó hægt að framkvæma neinar breytingar og því þarf að fá stafrænan myndlykli ef óskað er eftir öðrum áskriftarpakka.
Ef lokað er á hliðræna áskrift er ekki hægt að opna hana aftur.
Get ég raðað uppáhalds sjónvarpstöðvunum mínum saman? (slóð)
Svar
Hægt er að raða saman eftirlætisrásum með því að fara í Setup/Stöðvalisti á fjarstýringu. Í verslunum er hægt er að nálgast bækling þar sem allar helstu aðgerðir fjarstýringarinnar eru útskýrðar.
Get ég tengt Breiðbandið við sjónvarpið mitt? (slóð)
Svar
Já, en leitaðu frekar til fagmanna. Í mörgum tilfellum geta menn sjálfir tengt Breiðbandið, einkum ef húslögnin er mjög einföld. Eindregið er þó mælt með að fagmaður vinni verkið til að tryggja gæðin.
Get ég tengt stafrænan myndlykil við mörg sjónvarpstæki? (slóð)
Svar
Hægt er að fá aukamyndlykil fyrir sjónvarp um ADSL háð því að línan þín beri aukalykil.
Jafnframt er hægt að fá einn aukamyndlykil með hverri breiðbandsáskrift. Kostnaður við aukamyndlykla: Sjá verðskrá.
Stafrænu myndlyklarnir eru tengdir með SCART-snúrum sem ekki er hægt að framlengja að ráði vegna þess hve sjónvarpsmerkið deyfist hratt. Ef tengja á sjónvarp sem er í margra metra fjarlægð þarf að nota mótara til að færa vídeómerkið upp á burðartíðni svo hægt sé að senda það lengra.
Mögulegt er að nota myndbandstæki til þess.
Get ég verið með stafrænan myndlykil og haft hliðrænan sem aukalykil? (slóð)
Svar
Nei, aukalykill á Breiðbandsáskrift verður að vera sömu tegundar og aðallykill. Ef áskrifendur óska þess að halda gamla myndlyklinum en einnig fá stafrænan myndlykil þá er það skilgreint sem tvær áskriftir og því mjög óhagkvæmt.
Getur SCART-snúra úr myndlykli í sjónvarp valdið truflunum í sjónvarpi? (slóð)
Svar
Snúran (SCART-kapall) á milli sjónvarps og myndlykils er mjög viðkvæm og getur valdið ýmsum vandamálum, eins og:
- Flökt á mynd.
- Svartur skjár
- Mynd en ekkert hljóð
- Hljóðlaust en mynd sést
- Litabreytingar og óvenjulegir litir.
- Léleg myndgæði.
- Byrja á því að ýta SCART-snúrunni betur inn í sjónvarp, myndbandstæki, DVD-spilara og myndlykil.
- Ef það leysir ekki vandamálið þá getur verið að SCART-snúran sé ónýt og það þurfi að skipta um.
Hvað er Breiðbandið? (slóð)
Svar
Breiðbandið var fyrst tekið í notkun þann 6. febrúar 1998 og hófst þá dreifing á sjónvarps- og útvarpsefni með einfaldri tengingu inn á loftnetskerfi heimilanna.
Nú er komið að því að ljósleiðaratenging til heimila er orðinn raunhæfur kostur og því verður Breiðbandið nú uppfært í ljósnet og verður þannig eitt helsta gagnaflutningskerfi fyrir sjónvarp, útvarp, tölvur og síma. Þetta mun þó taka nokkur ár þar sem ljósleiðaratengingar kalla á nýjar innanhússlagnir á þeim heimilum sem vilja nýta sér þær.
Hvað þýða villuskilaboðin „Conax aðgangskerfi, enginn aðgangur“ á breiðbandinu? (slóð)
Svar
Þetta þýðir að stöðin sé ekki í áskrift eða ekki tiltæk í augnablikinu. Skilaboðin gætu t.d. komið á Adult Channel á daginn og Jetix á kvöldin, en þá eru þessar stöðvar ekki í útsendingu.
Þið getið leitað frekari upplýsinga um áskriftarpakka á skjarinn.is.
Hvar er inntakið í húsinu mínu fyrir Breiðbandið? (slóð)
Svar
Inntak Breiðbandsins er í innsigluðum inntakskassa Símans en til þess að ekki þurfi að rjúfa innsiglið er Breiðbandið lagt niður úr kassanum í svo kallað F-tengi.
Inntakið er þar með tilbúið að tengjast sjónvarpsdreifikerfi hússins.
Mun textavarpið breytast ef ég skipti yfir í Sjónvarp Símans? (slóð)
Svar
Textavarp mun ekki breytast í stafræna kerfi Breiðsbandsins en þó skal tekið fram að textavarpsþjónustan er alfarið undir stjórn hverrar sjónvarpsstöðvar fyrir sig.
Sjónvarp Símans um ADSL býður aðeins upp á textavarp RÚV.
Munu truflanir hverfa ef ég fæ mér Sjónvarp Símans um breiðband? (slóð)
Svar
Sjónvarp Símans um breiðband býður upp á svipuð myndgæði og sjónvarp um ADSL.
Mikilvægt er að loftnetskerfi hússins sé í góðu standi því truflanir sem myndast innanhúss geta valdið því að einstakar sjónvarpsrásir falli út.
Þarf meirihluti húsfélags að samþykkja tengingu við Breiðbandið? (slóð)
Svar
Já. Ákveða þarf tengingar við Breiðbandið innanhúss en þær kalla stundum á lagningu kapla innanhúss og tilheyrandi breytingar.
Þótt kostnaður sé í flestum tilfellum hóflegur er alltaf um sameiginlega ákvörðun íbúa hússins að ræða.
„Athugið kort“, kemur á skjáinn, hvað er að? (slóð)
Svar
Væntanlega snýr smartkortið öfugt í myndlyklinum eða það ekki nægilega vel sett inn í raufina.
- Ýtið smartkortinu betur inn í raufina. Ef það virkar ekki getur verið að það snúi öfugt.
- Prufið að taka smartkortið út, snúið því við og setja það aftur inn í raufina. Athugið að gylti flöturinn fer ávalt fyrst inn í raufina.
