Til að tengjast Sjónvarpi Símans þarftu að vera í ADSL-þjónustu hjá Símanum.
Þú getur sótt um Sjónvarp Símans með því að koma í næstu verslun Símans, hringja í 800 7000 eða einfaldlega fylla út umsókn hér á vefnum.
Áskriftarpakkar
Í grunngjaldi fyrir Sjónvarp Símans er innifalinn aðgang að öllum opnu íslensku stöðvunum, RÚV, RÚV+, ÍNN, N4, Omega og Alþingi. Þú getur horft á myndir og þætti í SkjáBíói og hlustað á fjölmargar íslenskar og erlendar útvarpsrásir. Grunngjaldið bætist við aðra áskriftarpakka. Sjá upplýsingar um aðra áskriftapakka.
Breiðbandsnotendur
Breiðbandsmyndlykla er hægt að nálgast í verslunum Símans. Hafa skal í huga að Breiðbandið nær einungis til rúmlega 50% notenda á höfuðborgarsvæðinu. Sjá upplýsingar um kostnað.
