Ég á í vandræðum með sjónvarpsþjónustuna. Hvað er til ráða?

Ef Sjónvarp Símans virkar ekki sem skyldi er í flestum tilfellum nægjanlegt að endurræsa búnað. Þú byrjar á því að taka rafmagn af myndlykli og slekkur síðan á beini (router). Bíður í ca 15 til 20 sekúndur og kveikir þá á beininum (router) aftur. Þegar DSL-ljós er orðið stöðugt skaltu setja rafmagn aftur á myndlykil.

Ef endurræsingin hefur ekkert að segja og vandinn eru enn til staðar er best að hafa samband við þjónustuver Símans 800-7000.

Helstu villuboð eru sem geta komið upp

  • „Myndlykill nær ekki sambandi við þjónustu“. Bendir til þess að tenging sé rofin milli myndlykils og símstöðvar. Við endurræsingu á búnaði er tengingin endurræst og lagast því í flestum tilfellum.
  • „Network error“. Bendir til þess að tenging á milli myndlykils og beinis (router) sé röng. Athugaðu hvort snúran sem liggur á milli myndlykils og beinis sé örugglega í hólfi 4 á beininum.
  • „Snjallkort vantar“. Athugaðu hvort snjallkort sé örugglega vel fast í myndlykli og heilt. Strjúktu með klút yfir gyllta flötinn á kortinu (örgjörvi) og prófaðu aftur.
  • „Villa í afruglun“. Athugaðu hvort snjallkort sé örugglega vel fast í myndlykli og heilt. Strjúktu með klút yfir gyllta flötinn á kortinu (örgjörvi) og prófaðu aftur.

Myndtruflanir í Sjónvarpi Símans

  • Lita- og myndbrengl. Athugaðu hvort snjallkort séu kirfilega fest í sjónvarpi og í myndlykli. Öll vandamál sem tengjast brenglaðri mynd tengjast sennilega skarttengi. Ef tengið er fast skaltu prófa að skipta því út.
  • Stafrænar truflanir (pixlar). Bendir til þess að um línuvandamál gæti verið að ræða. Yfirfarðu snúruna úr myndlykli í beini (router).  Er eitthvert mar á snúrunni, t.d. vegna núnings við hurð? Snúran frá beini í vegg á ekki að vera lengri en um 2 metrar.
  • Ef þú ert með sjónvarpstengi skaltu athuga að það er ekki fullur stuðningur við það ef tengið er tengt í millistykki. Ef ómögulegt er að tengja það beint í vegg verður það að vera fremst í millistykkinu, þ.e. næst rafmagnssnúrunni.



Svaraði þetta spurningunni þinni?

Ef þú hefur frekari spurningar þá sendu þær til Þjónustuvers Símans eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.

Aðrir vefir