Af hverju dettur sjónvarpsútsendingin út um leið og það er hringt í mig? (slóð)
Svar
Vandamálið er líklegast tengt smásíunni sem á að vera tengd við öll símtæki/faxtæki og er þá best að skipta henni út.
Í einstaka tilfellum er vandamálið tengt símtækinu sjálfu. Prófaðu mismunandi hringistillingar á því (t.d. að skipta úr „pulse“ yfir í „tone dialing“).
Af hverju koma truflanir á þráðlausa sjónvarpstengið, þegar kveikt er á öðru rafmagnstæki? (slóð)
Svar
Ef truflanir eru að koma á skjáinn þegar kveikt er á eitthverju rafmagnstæki er ástæðan sú að þráðlaust sjónvarpstengi og viðkomandi rafmagnstæki eru tengd á sömu rafmagnsgrein í húsinu.
Truflanir vegna rafmagstækja ættu þó aðeins að vera í stutta stund og hverfa eftir smá tíma.
- Athuga hvort þráðlausu sjónvarpstengin séu örugglega tengd beint í vegg eða á fyrsta tengi við snúru fjöltengis.
- Ef ekkert lagast má prófa að færa tengin til í íbúðinni.
Get ég tengt stafrænan myndlykil við mörg sjónvarpstæki? (slóð)
Svar
Hægt er að fá aukamyndlykil fyrir sjónvarp um ADSL háð því að línan þín beri aukalykil.
Jafnframt er hægt að fá einn aukamyndlykil með hverri breiðbandsáskrift. Kostnaður við aukamyndlykla: Sjá verðskrá.
Stafrænu myndlyklarnir eru tengdir með SCART-snúrum sem ekki er hægt að framlengja að ráði vegna þess hve sjónvarpsmerkið deyfist hratt. Ef tengja á sjónvarp sem er í margra metra fjarlægð þarf að nota mótara til að færa vídeómerkið upp á burðartíðni svo hægt sé að senda það lengra.
Mögulegt er að nota myndbandstæki til þess.
Getur nágranni minn truflað eða tengst netinu mínu ef ég nota þráðlaus sjónvarpstengi? (slóð)
Svar
Það er læsing á búnaðinum sem heitir DESpro (dulkóðun) og hún ver netið þitt gegn óviðkomandi aðgangi og upplýsingum sem þurfa að fara í gegn.
Hvert par af þráðlausum sjónvarpstengjum hefur sína eigin dulkóðun og tengin tvö geta því aðeins talað við hvort annað. Það kemur í veg fyrir að t.d. nágranni sem tengir samskonar tengi í sömu rafmagnsgrein hafi aðgang að þínu neti.
Getur rafmagn haft áhrif á beini eða myndlykil? (slóð)
Svar
Já, rafmagn getur haft áhrif á beini eða myndlykil. Ef truflanir koma á skjáinn þegar kveikt er á einhverju rafmagnstæki er ástæðan að öllum líkindum sú að þráðlaust sjónvarpstengi og viðkomandi rafmagnstæki séu tengd á sömu rafmagnsgrein í húsinu. Truflanir vegna rafmagnstækja ættu þó aðeins að vera í stutta stund og hverfa eftir smá tíma.
- Athugaðu hvort þráðlausu sjónvarpstengin séu örugglega tengd beint í vegg eða í fyrsta tengi við snúru fjöltengis.
- Rafmagnstengill, sem er staðsettur við hliðina á símatengli, getur valdið truflunum á ADSL-sambandinu milli beinis og símstöðvar.
- Ef ekkert lagast má prófa að færa tengin til í íbúðinni.
Getur SCART-snúra úr myndlykli í sjónvarp valdið truflunum í sjónvarpi? (slóð)
Svar
Snúran (SCART-kapall) á milli sjónvarps og myndlykils er mjög viðkvæm og getur valdið ýmsum vandamálum, eins og:
- Flökt á mynd.
- Svartur skjár
- Mynd en ekkert hljóð
- Hljóðlaust en mynd sést
- Litabreytingar og óvenjulegir litir.
- Léleg myndgæði.
- Byrja á því að ýta SCART-snúrunni betur inn í sjónvarp, myndbandstæki, DVD-spilara og myndlykil.
- Ef það leysir ekki vandamálið þá getur verið að SCART-snúran sé ónýt og það þurfi að skipta um.
Hefur Sjónvarp Símans um ADSL áhrif á Internethraða? (slóð)
Svar
Sjónvarp hefur aðeins áhrif á Internethraða þeirra sem eru í Leiðum sem hafa 8mb/s eða meira í internetinu. Sem dæmi þá má nefna að ef kveikt er á myndlykli ná viðskiptavinir í Leið 3 allt að 12 Mb/s á Internetinu. Sjónvarpsrás tekur 4 mb/s og meðan hún er notuð eru bandbreiðustu gagnatengingarnar skertar sem því nemur til að viðhalda stöðugleika tengingarinnar. Því hærri sem bitahraðinn er á hverri línu, því meiri truflun veldur hann á öðrum línum í sama streng. Því myndi það valda óæskilegri keðjuverkun ef stór hluti lína væri nýttur fyrir mikinn bitahraða. Sjónvarpsrás er stöðugt óslitið álag.
Hvað á ég að gera ef skilaboðin „Læst stöð“ birtast á nokkrum rásum? (slóð)
Svar
Endurræstu myndlykil með því að taka hann úr sambandi við rafmagn. Hinkraðu í nokkrar mínútur. Settu hann svo aftur í samband.
Bíddu þar til Símamyndin hverfur af skjánum og rautt ljós birtist á myndlyklinum. Kveiktu þá með fjarstýringunni.
Ef það virkar ekki prufaðu þá að slökkva á myndlykli með efsta takkanum á fjarstýringunni, taka snjallkortið úr myndlykli og þurka af gyllta fletinum (örgjafanum) með hreinum klút, setja aftur í og kveikja á myndlykli.
Hvað er að ef skilaboðin „Efni ekki tiltækt“, birtist? (slóð)
Svar
Ef þessi skilaboð birtast skaltu endurræsa myndlykil með því að taka hann úr sambandi við rafmagn. Hinkraðu í nokkrar mínútur. Settu hann svo aftur í samband. Bíddu þar til Símamyndin hverfur af skjánum og rautt ljós birtist á myndlyklinum. Kveiktu þá með fjarstýringunni. Reyndu því næst að leigja myndina aftur.
Hvað er að þegar skilaboðin „Myndlykill nær ekki sambandi við þjónustu“ birtast? (slóð)
Svar
Þessi villa gefur til kynna að myndlykillinn hafi ekki náð sambandi við miðlægt útsendingarkerfi og geta verið nokkrar ástæður fyrir því.
- Ef ADSL-samband er virkt (grænt ljós á að loga stöðugt við „DSL eða Broadband merkingu á beini) og myndlykill á að vera tengdur í tengi 4 á beininum (ef þetta er aukalykill þá tengist hann í hólf 3), ætti að vera nóg að taka myndlykilinn úr sambandi við rafmagn og setja hann aftur í samband.
- Ef villumelding fer ekki af skjánum, þá þarf næst að prufa að slökkva á og taka beini (router) úr sambandi við rafmagn, bíða í 30 sekúndur og stinga aftur í samband og kveikja á honum. Eftir að DSL- eða broadband ljósið á beini er orðið grænt og stöðugt þá þarf að taka myndlykil úr sambandi við rafmagn og setja aftur í samband.
Hvað er að þegar skilaboðin „Network error“ birtast? (slóð)
Svar
1. Í hvaða hólfi á beini er snúran sem kemur frá myndlyklinum? Hún á að vera í hólfi 4*
2. Ef tengingin er rétt, prófið að ýta við snúrunni og festa hana betur (í myndlykli og beini)
*Ef þetta er aukamyndlykill þá tengist hann í hólf 3 á beini.
Hvað er að þegar skilaboðin „snjallkort vantar/ólæsilegt“ birtast? (slóð)
Svar

Á eldri myndlyklinum
1. Kortið er undir myndlyklinum og gyllti flöturinn snýr að myndlyklinum.
2. Prófið að taka kortið út og rennið því aftur í raufina.
3. Endurræsið myndlykilinn ef villumeldingin fer ekki af skjánum.
Á HD Myndlyklinum
1. Kortinu er stungið inn í rauf að framan. Stendur sirka 1 cm út úr myndlyklinum.
2. Prófið að taka kortið út og setja aftur inn. Passið að kortið snúi rétt. Gyllti flöturinn snýr upp og fer fyrst inn í myndlykilinn.
3. Endurræsið myndlykilinn ef villumeldingin fer ekki af skjánum.
Hvað er að þegar skilaboðin „Truflun á myndveituþjónustu“ birtast? (slóð)
Svar
Kemur í uppsetningu nýs myndlykils. Myndlykillinn er þá ekki með nýjustu uppfærslu.
Leyfið myndlykli að keyra uppfærsluna og kveikið síðan á honum með fjarstýringu. Ef það dugar ekki til slökkvið og taka beini (router) úr sambandi við rafmagn, bíðið í 30 sekúndur, stingið aftur í samband og kveikið á honum. Eftir að DSL- eða broadband ljósið á beini er orðið grænt og stöðugt þá þarf að taka myndlykil úr sambandi við rafmagn og setja aftur í samband. Takið myndlykilinn úr sambandi við rafmang, bíðið í 30 sekúndur og setjið aftur í samband.
Hvað er að þegar skilaboðin „Villa í myndlykli“ birtast? (slóð)
Svar
Þegar þessi villumelding kemur upp bendir það yfirleitt til miðlægrar bilunar.
Byrjið á að prufa slökkva á og taka beini (router) úr sambandi við rafmagn, bíðið í 30 sekúndur stingið aftur í samband og kveikið á honum. Eftir að DSL- eða broadband ljósið á beini er orðið grænt og stöðugt þá þarf að taka myndlykil úr sambandi við rafmagn og setja aftur í samband.
Hvað er að þegar það stendur vur/vcr á skjánum á myndlyklinum? (slóð)
Svar
Þessi villa kemur upp á skjáinn á HD myndlyklinum (ekki á sjónvarpsskjánum)
Villan kemur upp ef að myndlykill er vitlaust tengdur
Hvernig er myndlykill tengdur? Þessi tenging er röng:
1. myndlykill -> scart (TV) -> video -> scart -> sjónvarp
2. myndlykill -> scart (VCR) -> videotæki / DVD án upptökumöguleika
Rétt tenging er:
1. myndlykill -> scart (TV) -> sjónvarp
2. myndlykill -> scart (VCR) -> videotæki / Upptöku DVD
Hvað er léttvarp? (slóð)
Svar
Léttvarpið er neyðarvörn þegar sambandsrof verður við aðgangstýrikerfi sem undir venjulegum kringumstæðum myndi orska algert útfall. Með Léttvarpinu virkar myndlykilinn áfram á útsendar sjónvarpsrásir þó allar gagnvirkar þjónustur liggi niðri.
Hvað er línudeyfing? (slóð)
Svar
Fyrir hvern kílómetra sem sjónvarpsmerkið ferðast um símalínur minnkar styrkleiki þess. Ef frágangur á innanhússlögnum er slæmur og merkið þarf að fara um marga tengipunkta minnkar styrkur þess nokkuð. Ein léleg símasnúra getur verið flöskuháls fyrir sjónvarpsmerkið þó allar hinar séu í toppstandi.
Vert er að fylgjast með því hvort vandamálið sé til staðar á einum tíma sólarhringsins fremur en öðrum, á kvöldin, nætur eða daginn. Ef vandamálið kemur upp á ákveðnum tímum sólarhrings geta aðrir þættir haft áhrif. Dæmi um slíka áhrifavalda:
• Öryggiskerfi senda yfirleitt út boð einu sinni á sólarhring. Þessi boð valda því að ADSL-sambandið dettur niður í stuttan tíma.
• Ef myndtruflanir eru miklar um kvöldmatarleytið þá getur verið að eldavélin dragi til sín það mikið rafmagn að truflanir verði á sjónvarpinu.
Hvað er Sjónvarp Símans um DSL? (slóð)
Svar
Sjónvarp Símans er sjónvarpsþjónusta fyrir þá sem hafa DSL Internettengingu (t.d. Leið 1 í Interneti) hjá Símanum.
Í flestum tilfellum er hægt að senda sjónvarpsefni í gegnum símalínuna án þess að minnka hraðann á DSL-línunni sjálfri. Við ákveðnar kringumstæður getur þó þurft að takmarka gagnahraða vegna Sjónvarpsins. Það gerist helst á svæðum sem liggja langt frá símstöð og hjá þeim viðskiptavinum sem eru með 8-16 Mb/s hraða á ADSL-línu.
Með Sjónvarpi Símans býðst þér aðgangur að öllum íslensku sjónvarpsstöðvunum og yfir 60 erlendum stöðvum í bestu mögulegu myndgæðum. Sjónvarp Símans býður einnig vídeóleiguna SkjáBíó þar sem þú getur valið bíómyndir með fjarstýringunni heima stofu.
Hver er munurinn á fjölskyldureikningi og aðalreikningi í sjónvarpsviðmóti (slóð)
Svar
Fjölskyldureikningurinn er hugsaður sem opinn aðgangur allrar fjölskyldunnar.
Þar er sett inn vörn fyrir óhóflegri úttekt og efnisval ætti ekki að ofbjóða neinum. Aðalreikningur er aftur á móti með læstum aðgangi sem rétthafi á einn að ráða. Með lykilorði er veittur aðgangur að efni sem ekki er talið æskilegt börnum og þar er ekki þak á kaupheimildum.
Mun textavarpið breytast ef ég skipti yfir í Sjónvarp Símans? (slóð)
Svar
Textavarp mun ekki breytast í stafræna kerfi Breiðsbandsins en þó skal tekið fram að textavarpsþjónustan er alfarið undir stjórn hverrar sjónvarpsstöðvar fyrir sig.
Sjónvarp Símans um ADSL býður aðeins upp á textavarp RÚV.
