Er hægt að nota mörg þráðlaus sjónvarpstengi í sömu íbúð? (slóð)
Svar
Já, hægt er að tengja allan búnað sem styðst við Ethernet við þráðlausu sjónvarpstengin. Ef nota á fleiri en 2 tengi (1 par) þarf að skilgreina þau sérstaklega til að öll tengin tali saman.
Á diski (CD) sem fylgir í pakkanum er hugbúnaður sem kallast „MicroLink dLAN configuration wizard“. Til að skilgreina fleiri en 2 þráðlaus sjónvarpstengi ferðu í gegnum eftirfarandi skref:
- Eftir að diskur er keyrðu byrjar hugbúnaðurinn sjálfkrafa að finna þau tengi sem tengd eru beini (router).
- Í næsta skrefi velur þú sameiginlegt lykilorð fyrir öll tengin. Ath. að í flestum tilfellum má halda því sem er til staðar þar sem sér lykilorð á að vera á hverju pari. Ef lykilorðið er Homeplug borgar sig að breyta því, þar sem það er forskilgreint af framleiðanda.
- Því næst þarf að skrá inn þau ID-númer sem skráð eru á hverju tengi. Hugbúnaðurinn forskráir það sem er tengt beininum sjálfum, en önnur tengi þarf að skrá inn handvirkt. Smelltu á Next þegar búið er að skrá inn öll ID-númerin.
- Smelltu á Finish og þá eiga öll tengin að tala saman og búnaðurinn að virka sem skyldi. Öll þráðlausu sjónvarpstengin eru nú örugg gegn óviðkomandi aðgangi.
Ég fæ ekki samband í gegnum þráðlausu sjónvarpstengin? (slóð)
Svar
- Athugaðu hvort „link-ljósið“ sé kveikt á búnaðinum.
- Ef það er ljós þarf að athuga hvort búið sé að tengja tengin rétt við beini og myndlykil.
- Ef „link-ljós“ vantar er ekki tenging á milli sjónvarpstengjanna og þá má prufa að tengja þau annars staðar í íbúðinni.
- Ef þráðlaust sjónvarpstengi er tengt í fjöltengi verður að tryggja að það sé tengt í fyrsta tengi hjá snúru fjöltengisins.
- Lagnaleiðin milli tengistykkjanna getur verið of löng eða rafkerfið í húsinu „óhreint“ þ.e. mikið um hátíðnipúlsa sem geta myndast út frá alls konar stýringum eða ljósdempurum. Lélegar jarðtengingar auka á þessar truflanir.
Getur nágranni minn truflað eða tengst netinu mínu ef ég nota þráðlaus sjónvarpstengi? (slóð)
Svar
Það er læsing á búnaðinum sem heitir DESpro (dulkóðun) og hún ver netið þitt gegn óviðkomandi aðgangi og upplýsingum sem þurfa að fara í gegn.
Hvert par af þráðlausum sjónvarpstengjum hefur sína eigin dulkóðun og tengin tvö geta því aðeins talað við hvort annað. Það kemur í veg fyrir að t.d. nágranni sem tengir samskonar tengi í sömu rafmagnsgrein hafi aðgang að þínu neti.
Hverjir eru notkunarmöguleikar þráðlausra sjónvarpstengja? (slóð)
Svar
Þráðlaus sjónvarpstengi eru aðallega ætluð til að tengja saman myndlykil fyrir sjónvarp um ADSL og beini

Þráðlausu sjónvarpstengin má einnig nota til að tengja tvær eða fleiri tölvur saman. Hægt er að nota þráðlaus sjónvarpstengi fyrir tölvu, prentara, myndlykil og aukasendi, þ.e. allan búnað sem styðst við Ethernet (IEEE 802.3). Hins vegar er ekki hægt að tengja hefðbundinn síma við tengin.

Einnig má nota þráðlausu sjónvarpstengin til að samnýta Internettengingu, þ.e um leið og annað tengið hefur verið tengt í beini þá er hægt að tengjast Internetinu með því að stinga hinu tenginu í hvaða rafmagnsinnstungu sem er. Ef viðskiptavinir vilja tengja fleiri en eina tölvu við netið með þessum hætti er hægt að kaupa annað par af þráðlausum sjónvarpstengjum. Ekki er þó ráðlagt að hafa fleiri en 10 tengi á hverju heimili.

Einnig er hægt að tengja allan annan Ethernet-tengdan búnað, t.d. leikjatölvur (Xbox/PS2) með þráðlausu sjónvarpstengjunum. Þá þarf ekki að leggja langar LAN-snúrur um allt hús. Virkni þráðlausu sjónvarpstengjanna fer þó eftir ástandi raflagna í hverju húsi/íbúð fyrir sig.

Hvernig tengi ég þráðlausu sjónvarpstengin? (slóð)
Svar
- Þú setur þráðlausu sjónvarpstengin beint í rafmagnsinnstungu eða fjöltengi (næst snúru), eitt nálægt ADSL-beini (router) og annað nálægt myndlykli.
- Þú tengir netsnúru frá tengi til viðkomandi búnaðar. Athugaðu að snúran fer alltaf í tengi 4 á beini. Ef búnaður er tengdur rétt við þráðlausu sjónvarpstengin birtast 2 ljós á tenginu (100/ACT og Power).
- Eftir örfáar sekúndur frá því seinna tengið hefur verið sett í samband kviknar á Link-ljósinu sem gefur til kynna að tenging sé komin á milli tengjanna tveggja.
- Nú á allt að virka sem skyldi og þú getur horft á sjónvarp um ADSL á hefðbundinn hátt.
Mig vantar upplýsingar um sjónvarpstengi? (slóð)
Svar
Þráðlaust sjónvarpstengi er einfaldur og fyrirferðarlítill búnaður sem nýtir rafmagnslagnir heimilis fyrir flutning sjónvarpsmerkis innan heimilis og er því óþarfi að tengja snúru milli beinis og myndlykils.
Bitahraði netsambands um tengin er allt að 85 Mb/s, sem þýðir að Sjónvarp Símans er í fullum gæðum. Þráðlausu sjónvarpstengin eru fullkomlega örugg gegn óviðkomandi aðgangi. Á þeim er læsing sem tryggir að sambandið sé öruggt. Hvorki þarf að setja heimatengin upp né samtengja til að tryggja öryggi. Með þráðlausum sjónvarpstengjum getur búnaður verið í allt að 200 metra fjarlægð. Þú getur því horft á sjónvarp um ADSL hvar sem er á heimilinu.
Mismunandi sjónvarpstengi
• Hefðbundið tengi - Bitahraði netsambands er allt að 85 Mb/s, sem þýðir að sjónvarp um ADSL er í fullum gæðum.
• Öflugra tengi - Bitahraði þessara tengja er allt að 200 Mb/s, sem þýðir að þau styðja við háskerpuútsendingar og notkun aukamyndlykils á heimili.
• Þráðlaus aðgangspunktur - Með þessari lausn er hægt að breyta öllum rafmagnsinnstungum heimilisins í þráðlausan aðgangspunkt. Gagnaflutningshraðinn er allt að 85 Mb/s en allt að 54 Mb/s þráðlaust.
Í einhverjum tilfellum styður rafkerfi ekki við þráðlausu sjónvarpstengin og í þeim tilfellum getur viðskiptavinur skilað búnaði í verslun. Mikilvægt er að viðskiptavinur skili öllum snúrum með, cd, umbúðum og öðru sem fylgdi með í upphafi.
Uppsetning
Þráðlausu sjónvarpstengin eru auðveld í uppsetningu. Þú einfaldlega setur þau beint í rafmagnsinnstungu eða fjöltengi (næst snúru), eitt nálægt ADSL-beini (router) og annað nálægt myndlykli. Þú tengir netsnúru frá tengjunum til viðkomandi búnaðar. Athugaðu að snúran fer alltaf í tengi 4 á beini.
Ef búnaður er tengdur rétt við heimatengið birtast 2 ljós á tenginu (100/ACT og Power). Eftir örfáar sekúndur frá því seinna tengið hefur verið sett í samband kviknar á Link-ljósinu sem gefur til kynna að tenging sé komin á milli heimatengjanna tveggja. Nú á allt að virka sem skyldi og þú getur horft á sjónvarp um ADSL á hefðbundin hátt.
