Hvað er að ef skilaboðin „Efni ekki tiltækt“, birtist? (slóð)
Svar
Ef þessi skilaboð birtast skaltu endurræsa myndlykil með því að taka hann úr sambandi við rafmagn. Hinkraðu í nokkrar mínútur. Settu hann svo aftur í samband. Bíddu þar til Símamyndin hverfur af skjánum og rautt ljós birtist á myndlyklinum. Kveiktu þá með fjarstýringunni. Reyndu því næst að leigja myndina aftur.
Hvað er léttvarp? (slóð)
Svar
Léttvarpið er neyðarvörn þegar sambandsrof verður við aðgangstýrikerfi sem undir venjulegum kringumstæðum myndi orska algert útfall. Með Léttvarpinu virkar myndlykilinn áfram á útsendar sjónvarpsrásir þó allar gagnvirkar þjónustur liggi niðri.
Hvað hef ég myndina lengi eftir að að pantað hana? (slóð)
Svar
Þú hefur myndina í 36 klukkustundir frá pöntun og getur horft á hana eins oft og þú vilt á þeim tíma.
