Svona stofnar þú notanda og sækir um aðgang að fyrirtæki
1. skref
Notandi stofnar aðgang að Þjónustuvefnum. Fylla þarf út kennitölu, notendanafn sem viðkomandi óskar eftir og aðrar upplýsingar. Athugaðu að ef þú ert nú þegar með aðgang að Þjónustuvefnum þarft þú aðeins að fara í gegnum skref 3 og 4.
2. skref
Notandi skráir sig inn á Heimabankann sinn. Staðfesta þarf umsóknina í rafrænu skjali og velja lykilorð.
3. skref
Notandi skráir sig inn á Þjónustuvef fyrirtækja og sækir um aðgang að fyrirtækinu.
4. skref
Prókúruhafi fyrirtækisins skráir sig inn á Netbanka fyrirtækisins og staðfestir umsóknina í rafrænu skjali
Á þennan hátt tryggjum við að einungis réttur aðili fái aðgang að viðskiptamannaupplýsingum fyrirtækisins hjá Símanum.
