Með hringiflutningi er hægt að flytja hringingu í GSM síma í annað símanúmer innanlands eða utan, í GSM kerfinu, í NMT kerfinu eða í talhólf. Hringiflutningar í fastlínu, GSM númer eða NMT númer eru eftirfarandi:
| Flutningur | Virkur | Óvirkur |
|---|---|---|
| Ekki svarað | **61*símanúmer# | ##61# |
| Utan þjónustusvæðis /slökkt | **62*símanúmer# | ##62# |
| Á tali | **67*símanúmer# | ##67# |
| Alltaf | **21*símanúmer# | ##21# |
| Tímastilltur flutningur | **61*símanúmer**tími# | ##61# |
Hringiflutningur í talhólf
| Flutningur | Virkur | Óvirkur |
|---|---|---|
| Ekki svarað | **61*8800100# | ##61# |
| Utan þjónustusvæðis /slökkt | **62*8800100# | ##62# |
| Á tali | **67*8800100# | ##67# |
| Alltaf | **21*8800100# | ##21# |
| Tímastilltur flutningur | **61*8800100**tími# | ##61# |
Símtal bíður
Þessi þjónusta gerir þér kleift að svara hringingu þótt þú sért í öðru símtali. Flestar gerðir GSM síma bjóða þennan möguleika í valmynd en einnig er hægt að gera þjónustuna virka á eftirfarandi hátt: *43# og staðfest með því að ýta hringitakkann á símanum. Þjónustan er aftengd svona: #43# og staðfest með því að ýta hringitakkann á símanum. Sækja þarf sérstaklega um símtal bíður. Að öðru leyti vísast í leiðarvísi símtækisins.
Númerabirting
Með númerabirtingu er hægt að sjá númer þess sem hringir hverju sinni, nema sá hinn sami noti sérþjónustuna númerleynd. Þegar hringt er frá útlöndum birtast númerin sjaldnast..
Númeraleynd
Með númerleynd má koma í veg fyrir að númer birtist á skjá þess GSM síma sem hringt er í. Sækja þarf sérstaklega um númerleynd.
Einnig er til tímabundin númerleynd. Sú þjónusta er gjaldfrjáls og virkjuð á eftirfarandi hátt: #31# Símanúmer. Síðan er hringt. Sumir símar bjóða fasta númeraleynd í valmynd og er notendum bent á að kynna sér leiðarvísi símtækis.
Læsa fyrir símtöl
Hægt er að loka fyrir hringingar úr símum í símatorg og símtöl til útlanda. Þú getur virkjað læsingar og tekið þær af á Þjónustuvefnum.
