Tímaáætlun
1. Hvenær geta fyrstu viðskiptavinir tengst?
Fyrsta markaðssvæði samanstendur af Skagafirði og Akrahreppi. Sala á því svæði hófst 24. ágúst s.l. Áætlun yfir upphaf sölu í öðrum sveitarfélögum/markaðssvæðum er að finna á vef fjarskiptasjóðs.
2. Hvað mun verkefnið taka langan tíma?
Uppbyggingu háhraðanetsins á að vera lokið í árslok 2010 en samningur við Símann um verkefnið er til 2014 með möguleika á framlengingu um allt að 2 ár.
Á hvaða svæðum
3. Hvaða staðir falla undir verkefnið?
Lögheimili með heilsársbúsetu og fyrirtæki með heilsársstarfsemi utan uppgefinna markaðssvæða háhraðanetþjónustu. Afmörkun markaðssvæða tekur í dag mið af upplýsingum um þjónustusvæði fjarskiptafyrirtækjanna sem lágu fyrir við undirskrift samnings 25. febrúar s.l.
4. Minn staður er ekki á listanum, af hverju ekki?
Ástæða þess getur í fyrsta lagi verið að markaðsaðilar hafi tilkynnt fjarskiptasjóði að háhraðanetstenging standi þegar til boða á markaðslegum forsendum. Í öðru lagi getur verið að staðurinn sé ekki lögheimili með heilsársbúsetu. Í þriðja lagi getur verið að staðurinn sé ekki fasteign með atvinnustarfsemi allt árið. Í fjórða lagi getur verið um að ræða mistök í skráningu og er aðilum þá bent á að hafa samband við fjarskiptasjóð, fjarskiptasjodur@fjarskiptasjodur.is, eða senda bréf til samgönguráðuneytisins, merkt fjarskiptasjóði. Ef í ljós kemur að staðurinn fellur sannanlega undir verkefnið verður honum bætt á listann.
5. Er staðalistinn endanlegur eða getur hann breyst?
Staðalistinn mun óhjákvæmilega breytast á framkvæmdatíma. Búseta getur t.d. breyst á framkvæmdatímanum sem leitt getur til þess að staðir bætast við eða falla út. Auk þess geta komið fram villur í skráningu sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Eingöngu fjarskiptasjóður getur breytt listanum. Breytingar á listum verða gerðar eftir þörfum og birtar á vef fjarskiptasjóðs.
Þjónustan
6. Hver er munurinn á viðskiptavini í tengslum við þetta verkefni og öðrum viðskiptavinum?
Verkefnið tryggir að allir staðir í verkefninu hafi kost á háhraðanettengingu sem uppfyllir tilteknar kröfur verkefnisins um m.a. gæði, afköst og verð. Meðal annars er tryggt að viðskiptavinur í tengslum við þetta verkefni fá þjónustu á sambærilegum kjörum og gerist í þéttbýli, óháð staðsetningu. Viðskiptavinir fá að jafnaði uppsetningu og notendabúnað innifalið í tengingu sinni. Viðskiptavinir sem kjósa að gera samning við annan söluaðila en Símann um ADSL tengingu þurfa að kynna sér kostnað og fyrirkomulag uppsetningar og notendabúnaðar hjá sínum söluaðila sérstaklega.
7. Verður þjónustan í boði alls staðar á landinu?
Eitt aðalmarkmið fjarskiptaáætlunar er að allir landsmenn sem þess óska hafi aðgang að háhraðanettengingu. Verkefnið á að framfylgja því markmiði og stefnt er að því að öll lögheimili og fyrirtæki með heilsárs búsetu/atvinnustarfsemi á landinu muni eiga kost á háhraðanettengingu að uppbyggingu lokinni í árslok 2010.
8. Við hvaða tilvikum verður eingöngu gervihnattaþjónusta í boði?
Það á við í mjög erfiðum tilvikum þar sem ekki eru tæknilegar og eða kostnaðarlega forsendur fyrir því að tengja viðkomandi eftir öðrum leiðum. Stefnt er á að innan við 80 staðir muni notast við gervihnattaþjónustu af þessum rúmlega 1.700 stöðum sem um ræðir.
9. Hvernig verður notendaþjónustu háttað við viðskiptavini verkefnisins?
Viðskiptavinir geta valið söluaðila og þ.a.l. þjónustuaðila frá upphafi sölu í verkefninu. Viðskiptavinir skulu hafa samband við þann þjónustuaðila sem þeir hafa valið að hafa viðskipti við.
10. Mun Fjarskiptasjóður hafa eftirlit með gæðum þjónustunnar?
Í útboðsgögnum eru gerðar kröfur um gæði þjónustu. Fjarskiptasjóður mun hafa eftirlit með að staðið verði almennt við þau gæðaviðmið. Dagleg þjónusta við notendur er hins vegar alfarið á höndum Símans og annarra söluaðila á samningstímanum eins og um hefðbundna þjónustu sé að ræða.
Kostnaður
11. Hvað þarf ég að greiða í stofngjald?
Fjarskiptasjóður mun senda bréf á heimilisfang þeirra staða sem eiga kost á að tengjast. Þar mun koma fram sá tímafrestur sem viðskiptavinir hafa til að panta þjónustu. Tímafresturinn miðast við að viðskiptavinir geri pöntun áður en uppsetningar á viðkomandi markaðssvæði hefjast. Ef pöntun er gerð innan tímafrestsins þá er búnaðurinn og uppsetning hans viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Ef viðskiptavinur vill síðar breyta því hvar búnaður er settur upp eða þarf að laga innanhúslagnir þá er það á kostnað hans. Ef viðskipavinir óska eftir tengingu eftir að uppsetningu er lokið á viðkomandi svæði þá þarf að greiða sérstaklega fyrir þá vinnu. Fyrir þá vinnu er heildsölu Símans heimilt að innheimta gjald, að hámarki kr. 25.000 með VSK, fyrir hverja uppsetningu.
12. Hvað kostar þjónustan?
Mánaðarlegt þjónustugjald Símans til viðskiptavina í verkefninu fylgir ADSL verðskrá fyrirtækisins hverju sinni óháð tækni. Verðskrá annarra söluaðila liggur ekki fyrir.
Ávinningur
13. Er þetta bót fyrir þá sem eru með einhverja nettengingu fyrir?
Samkvæmt afmörkun fjarskiptasjóðs eru flestir staðir innan verkefnisins eingöngu með tengingu upp á 128kb/s hámarkshraða í dag. Hraðinn sem boðið er upp á í þessum samning er hins vegar a.m.k 16 sinnum meiri eða 2Mb/s að lágmarki.
Tæknin
14. Hvaða tækni verður notuð við uppbyggingu?
Stærsti hluti uppbyggingarinnar verður með þráðlausri 3G tækni. Einnig verður uppbygging með ADSL tækni þar sem aðstæður bjóða. Í jaðartilfellum verður um WiFi- og gervihnattalausnir að ræða. Síminn, sem verktaki fjarskiptasjóðs, metur og ákveður hvaða hvaða tækni hentar hverju sinni.
15. Hvaða hraði verður í boði fyrir viðskiptavini verkefnisins?
Hámarkshraði verður mismunandi eftir því hvaða tækni er notuð enda afkastar tæknin mismiklum gagnaflutningi. Þættir eins og lengd og gæði símalínu eða fjarlægð frá sendi hafa áhrif á hraðann sem hægt er að tryggja. Öllum stöðum mun standa til boða að lágmarki allt að 2Mb/s hraði.
16. Eru áform um að auka hraðann sem verður í boði?
Hraði á ADSL fylgir þjónustuframboði Símans á ADSL markaði hverju sinni. Aukinn hraði á 3G tengingum verður í boði eftir að uppbyggingu kerfisins lýkur. Aðrir söluaðilar munu væntanlega bjóða þjónustu á eigin forsendum.
