Stillingar fyrir heimasíma

Bein lína | Endurval | Númerbirting | Skammvalsminni | Símtalspöntun |


Verð: Símtalspöntun o.fl.

Bein lína

Síminn hringir sjálfkrafa í fyrirfram ákveðið númer þegar símtólið er tekið upp. Mikið öryggi getur falist í þessu, t.d. fyrir þá sem skyndilega þurfa hjálp en eiga erfitt með að hringja.

Bein lína strax - Síminn hringir í fyrirfram ákveðið númer um leið og símtólið er tekið upp. Starfsmenn Símans tengja og aftengja þjónustuna.

Bein lína eftir 6 sek. - Síminn hringir í fyrirfram ákveðið númer 6 sekúndum eftir að símtólið er tekið upp. Hægt er að hringja í hvaða númer sem er innan þess tíma.

Notkun
Til að tengjast skal velja *53* símanúmer#
Til að aftengjast #53#

Endurval

Þú getur endurvalið síðasta númer sem hringt var í með því einu að ýta á tvo takka. Notkun: Ýttu á *0 til að endurvelja síðasta númer.

Númerabirting

Númer þess sem hringir sést á númerabirti hjá þeim sem hringt er í. Þú getur notað skammtíma númeraleynd í stökum hringingum og þá birtist númerið þitt ekki hjá þeim sem þú hringir í: *31* og símanúmerið sem hringt er í.

Virkja / afvirkja númerabirtingu á Þjónustuvef Símans

Skammvalsminni

Þú getur sett númer í minni, t.d. þau sem þú hringir oftast í, og þarft þá aðeins að ýta á 3-4 takka til að hringja í þau. Hægt er að hafa læst símanúmer í skammvalsminni ef það er sett í skammval áður en læsing er framkvæmd.

  • Til að tengjast skal velja *51* skammvalsnúmer * símanúmer#
  • Til að aftengjast #51* skammvalsnúmer #
  • Til að hringja: **skammvalsnúmer

Símtalspöntun

Símtal pantað í númer á tali. Hægt er að eiga pantað símtal í allt að fimm númer í einu.

Notkun: Þegar númerið losnar hringir síminn hjá þér og þegar þú tekur upp símtólið hringir sjálfkrafa í númerið sem þú pantaðir símtal í og áður var á tali.

Tenging: Ýttu á 5 og bíddu eftir staðfestingu (frá talvél).

Athugað hvort þjónustan sé virk:

  • Allar pantanir: *#37#
  • Ákveðið númer: *#37# símanúmerið #

Aftenging:

  1. Allar pantanir: #37#
  2. Ákveðið númer: #37*
  3. símanúmerið #

Athugið!

  • Símtalspöntun virkar ekki ef sá sem hringt er í hringir aftur innan 5 sekúndna
  • Eigir þú átt pantað símtal og svarar ekki innan 10 sek. þegar hringir hjá þér er reynt aftur eftir 3 mín. Svarir þú ekki þá eyðist pöntunin.
  • Ef þú átt pantað símtal og það er á tali hjá þér þegar númerið losnar er beðið í 3 mín. og síðan reynt aftur. Ef enn er á tali hjá þér þá er pöntuninni eytt.
  • Ef þú pantar símtal og viðkomandi leggur ekki á innan 45 mín. eyðist pöntunin.
  • Ekki er hægt að panta símtal í eða frá númerum sem eru í GSM-kerfinu, NMT-kerfinu, í útlöndum eða innan PBX-símstöðva.