Panta þarf skráningu í símaskrá fyrir aukanúmer en ekki þarf að greiða aukalega fyrir hana. Með þessum hætti geta fjórir heimilismeðlimir verið með eigin númer og hringingu.
Hægt er að hringja í aukanúmerið en ekki úr því.
Ekki er um að ræða annan hringitón eins og þekkt er fyrir GSM síma heldur lengist hringingin eða styttist eftir því sem við á, og því aðeins hægt að nota hverja hringingu einu sinni með hverju aðalnúmeri.
Tíðni hringinga:
a. Aðalhringing
------- ------- ------- ------- ------- ------- ------- -------
b. AHRI1 aukahringing er svipuð hringing og notuð er við símtalspöntun en þó er lengra á milli hringinga.
--- --- --- --- --- --- --- --- ---
c. AHRI2 aukahringing er heldur styttri en aðalhringingin.
----- ----- ----- ----- ----- -----
d. AHRI3 aukahringing er löng og stutt hringing.
----- - ----- - ----- - ----- - -----
Hægt er að hringja í aukanúmerið en ekki úr því.
