Skilmálar fyrir Safnið

Safnið er þjónusta sem viðskiptavinum internetþjónustu Símans stendur til boða gegn gjaldi samkvæmt verðskrá.

Notendur Safnsins geta vistað efni og gögn á stafrænu formi á netsvæði í eigu Símans, sem þeim er veittur aðgangur að. Gögnum er hlaðið inn á netsvæði í gegnum vefviðmót. Nálgast má efni það sem vistað er í Safninu á Netinu enda sé notandanafni og lykilorði framvísað en jafnframt er notendum kleift að gera efnið aðgengilegt öðrum um Netið án kröfu um notandanafn og lykilorð.

„Notandi” er sá nefndur í skilmálum þessum, sem skráður er greiðandi fyrir notkun Safnsins.

Eftirfarandi skilmálar gilda um notkun Safnsins

1. Síminn skal tryggja öryggi og trúnað notenda og gögn sem þeir kunna að geyma í Safninu.
2. Notandi gerir sér grein fyrir því að Síminn skoðar hvorki fyrirfram það efni sem vistað er í Safninu né gerir breytingar á því. Notandi ber því sjálfur alla ábyrgð á því efni sem hann vistar í Safninu. Því er athygli vakin á mikilvægi þess að gæta vel að því að lykilorð að þjónustunni komist ekki í hendur annarra en notanda.
3. Óheimilt er að vista efni í Safninu sem komist hefur verið yfir á ólögmætan hátt, veldur öðrum miska eða brýtur ákvæði laga og reglna, t.a.m. um höfundarétt, persónuvernd, almennt velsæmi, klám eða hótanir. Athygli er vakin á því að notandi ber lagalega ábyrgð og eftir atvikum refsiábyrgð ef efni sem hann vistar í Safninu brýtur gegn ákvæðum laga og reglna.
4. Notanda er óheimilt að samnýta aðgang sinn að Safninu með þriðja aðila eða lána eða gefa þriðja aðila upp lykilorð sitt að Safninu.
5. Aðgangi notanda að þjónustunni er lokað 30 dögum eftir eindaga reiknings. 60 dögum eftir eindaga reiknings ber notanda að greiða skuld sína, vilji hann komast að gögnum þeim er hann vistar á Safninu. Síminn áskilur sér rétt til að að eyða gögnum notanda endanlega sem vistuð eru í Safninu hafi reikningar ekki verið greiddir í 150 daga.
6. Síminn ber ekki ábyrgð á tjóni sem notandi verður fyrir ef ekki er unnt að nota Safnið tímabundið af einhverjum ástæðum.
7. Síminn ber ekki ábyrgð á því ef gögn sem vistuð eru í Safninu tapast eða skemmast nema það sé vegna ásetnings eða stórkostlegs gáleysis af hálfu Símans. Síminn ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til orsaka svo sem rofs á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskipta, línubilana, bilana í stöðvum, bilana í búnaði, verkfalls, náttúruhamfara, stríðs, eða annarra óviðráðanlegra orsaka.
8. Síminn ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili veldur.
9. Síminn ber ekki ábyrgð á tjóni sem notendur verða fyrir í tengslum við notkun þeirra á Safninu, nema orsök tjónsins sé að rekja til ásetnings eða stórfellds gáleysis af hálfu Símans. Síminn ber þó aldrei ábyrgð á afleiddu tjóni svo sem rekstrartapi.
10. Ef í ljós kemur að notkun á Safninu felur í sér misnotkun á búnaði eða þjónustu Símans, áskilur Síminn sér rétt til að synja notanda um þjónustu.
11. Skráður rétthafi tengingar telst ábyrgur fyrir því að þessum reglum sé fylgt.
12. Notandi ber ábyrgð á að skrá inn rétt ADSL númer fyrir aðgang að Safninu í sjónvarpi um ADSL.
13. Ef notandi eyðir gögnum fyrir misgáning þarf hann að greiða Símanum fyrir að sækja gögnin að því tilskildu að hægt sé að ná í gögnin. Gögn eru aldrei vistuð lengur en í þrjá mánuði.
14. Við uppsögn lokast aðgangur notanda sjálfvirkt án tafar. Því ber notandi ábyrgð á að sækja öll gögn sem vistuð hafa verið í Safninu fyrir uppsögn, sem ekki mega glatast. Ef notanda hefur láðst að sækja gögn sem vistuð hafa verið í Safninu þarf hann að greiða fyrir að ná í gögnin.
15. Síminn áskilur sér allan rétt að hugverkum er felast í þjónustu Safnsins og öll notkun og hvers konar eftirlíkingar án heimildar frá Símanum eru bannaðar.
16. Síminn áskilur sér rétt til að fjarlægja efni sem brýtur gegn skilmálum þessum, lögum og reglum.
17. Sú þjónusta sem í boði er í tengslum við Safnið og er í höndum annarra aðila en Símans að veita og annast, er alfarið á ábyrgð þeirra sömu aðila. Framangreint á m.a. við um prent- og framköllunarþjónustu Hans Petersen.
18. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það jafnframt valdið tafarlausri og fyrirvaralausri lokun á þjónustunni.


« Til baka



Vefhlutar

Aðrir vefir