Leiðbeiningar hvernig Tölvuvari er settur upp. Á slóðinni http://www.siminn.is/tolvuvari/ er hægt að nálgast Tölvuvarann með því að smella á "kaupa Tölvuvara" Þú skráir þig inn sem viðskiptavinur Símans, hleður niður Tölvuvaranum og færð leyfislykil sem þú notar til þess að setja Tölvuvarann upp á þinni tölvu.
Næst tvísmellir þú á skrána Tolvuvari_setup.exe. Þá birtist glugginn PcMapper upsetning.
Til að samþykkja skilmálana smellir þú á "Samþykkja" og því næst "Áfram".
Hér þarf að veita helstu upplýsingar um eiganda tölvunnar.
Þú slærð inn nafn, heimilisfang, símanúmer, netfang og land eiganda tölvunnar.
Að lokum er sleginn inn leyfislykill sem viðskiptavinir fá er þeir hlaða niður Tölvuvaranum.
Það er mjög mikilvægt að skráðar séu inn réttar upplýsingar, en þær verða geymdar í gagnagrunni vaktmiðstöðvarinnar og notaðar til að sanna eignarrétt á tölvunni.
Þegar lokið er við skráningu er smellt á Setja Upp.
Athugið að smella aðeins einu sinni á hnappinn.
Upplýsingarnar eru svo sendar til vaktmiðstöðvarinnar.
Eftir uppsetningu Tölvuvara sendir vaktmiðstöðin staðfestingu á netfangið sem var uppgefið.
Sá tölvupóstur inniheldur m.a. raðnúmer (öryggiskóði) sem nota þarf ef tölvu er stolið (eða ef fjarlægja þarf Tölvuvara af tölvu).
Við mælum með því að tölvupósturinn sem sendur er til þín eftir uppsetningu sé prentaður út og honum svo eytt. Sá póstur inniheldur, eins og áður hefur komið fram, kóða sem nota má til þess að taka Tölvuvarann út af vélinni.
Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.