Hvernig er öryggi í Netafritun Símans?

Netafrit Símans setur öryggi í algjöran forgang. Búnaður er á bak við örugga eldveggi og gögn eru send í gegnum öruggar gagnalínur. Við tryggjum rekstrarsamfellu með því að eingöngu við búnað frá bestu framleiðendum, eins og Cisco, HP og IBM. Síminn (ANZA) var fyrsta upplýsingatæknifyrirtækið á Íslandi til að fá vottun samkvæmt öryggisstaðlinum BS 7799. Nýr öryggisstaðall, ISO 27001, hefur verið gefinn út og hefur Síminn þegar fengið vottun samkvæmt honum.

Allar skrár sem sendar eru um Netafrit Símans eru dulkóðaðar og þjappaðar áður en þær eru sendar um Internetið. Enginn nema þú getur lesið gögnin. Jafnvel þótt svo ótrúlega vildi til að einhver kæmist yfir sendingu frá þér myndi viðkomandi bara sjá ólæsilegar óskilgreindar skrár.

Netafrit Símans notast við 128-bita Twofisch algoritma frá Counterpane Labs. Twofisch dulkóðunin hefur oft verið reynd og prófuð og fram að þessu hafa engin atvik verið skráð um árangursríkt innbrot.

Notandi setur upp dulkóðunarlykil (lykilorð) sem enginn annar hefur vitneskju um. Því lengri dulkóðunarlykill því betra.
Þessi lykill fer aldrei yfir Internetið. Ef þú glatar dulkóðunarlyklinum getur enginn sótt gögnin þín þrátt fyrir að þau séu til staðar.

Áríðandi : Dulkóðunarlykillinn virkar eins og PIN númerið fyrir kreditkort. Ef lyklinn glatast getur hvorki notandi né Netafrit Símans endurheimt gögnin. Því skala geyma dulkóðunarlykilinn á öruggum stað þar sem hann glatast ekki. Netafrit Símans býður upp á að geyma dulkóðunarlykilinn í innsigluðu umslagi í geymslu.


« Til baka

Svaraði þetta spurningunni þinni?

Ef þú hefur frekari spurningu þá sendu fyrirspurn til þjónustuversins eða hringdu í síma 800 7000, og við aðstoðum þig frekar. Þjónustuverið er opið frá 8 til 22 alla virka daga, og frá 10 til 22 um helgar. Neyðarnúmer 907-7000 er opið utan afgreiðslutíma Þjónustuvers.





Vefhlutar

Aðrir vefir