Þráðlaus net

Örugg netnotkun

Síminn telur það hlutverk sitt, sem leiðandi fyrirtæki í fjarskiptum að upplýsa viðskiptavini sína um helstu leiðir til að auka öryggi gagna og hvernig megi verjast tölvuþrjótum. Ábyrgð þeirra sem geyma viðkvæm gögn í tölvum sínum er mikil og hvetjum við því alla þá aðila til að kynna sér þau ráð sem hér eru nefnd á síðunni.

Þessar ráðleggingar beinast einkum að þráðlausum netum, en slíkar teningar verða að teljast ekki nærri eins örugg og þegar tölva er nettengd með snúru.

Slökktu á beini þegar hann er ekki í notkun

Ef slökkt er á beini þegar hann er ekki í notkun kemur það í veg fyrir að utanaðkomandi geti hakkað sig inn á beininn. Takkinn er aftan á beininum.

Eigið aðgangsorð og heiti á þráðlausa netið

Fyrirframstilling beinis er SSID(Service Set identifier) og aðgangsorð Encryption key.

SSID og Encryption Key verður að breyta inn á beininum.

  • Tengdu tölvuna með snúru við beini
  • Sláðu inn slóðina 192.168.1.254
  • skráðu þig inn á beini með notendanafninu admin og lykilorði admin
  • Smelltu á Home Network
  • Smelltu á WLAN
  • Efst uppi hægra meginn smellirðu á Configure



  • Undir SSID skrifarðu nafnið sem þú vilt að birtist á þráðlausa netinu, ath má ekki innihalda íslenska stafi
  • Undir WEP encryption skal rita þann lykil nota á þegar tengst er þráðlausa netinu. Lykillinn verður að vera 10 stafir, ath. einungis bókstafirnir A til F og tölustafir koma til greina.

Breyta úr WEP í WPA / WPA2

Einnig er mögulegt að breyta öryggislykli til að auka öryggi. Nota má WEP (beinir er forstilltur á það) WPA eða WPA2 (aðeins tölvur og netkort sem komu út eftir árið 2006 styðja WPA2).

  • Til að breyta í WPA eða WPA2 lykil er smellt á "WPA-PSK Encryption".
  • Næsta skref er að Eftir að þú ert búin að hakka við WPA þá getur þú nota flettigluggann til að velja hvort stillt verði á WPA eða WPA2.
  • WPA lykill má vera frá 8 stöfum upp í 64. Ekki skal nota séríslenskir stafi í WPA lykil.


Slökkva á auðkenni þráðlausa netsins

Til að auka öryggi þráðlausa netsins er mögulegt að slökkva á auðkenni. Þetta er gert með því að gera eftirfarandi aðgerðir í þessari röð:

  • Tengja tölvuna með snúru við beini
  • Slá inn slóðina 192.168.1.254
  • Skrá tölvuna inn á beini með notendanafninu admin og lykilorði admin
  • Smella á Home Network
  • Smella á WLAN
  • Efst uppi hægra meginn er smellt á Configure
  • Taka hakið úr "Broadcast Network Name"
  • Smella á Apply



Þegar tengja á á þráðlausa netið aftur eftir þessa aðgerð þarf að tengja það handvirkt með því að smella á "Setup á Wireless Network" og setja þar handvirkt inn SSID og aðgangsorðið að tengingunni.

Aðrir vefir