Þjónusta í Frelsi

Hringdu

Þarftu að ná í einhvern?

Sendu skilaboðin: Hringdu *símanúmer þess sem á að hringja* (t.d. Hringdu 8009999) í 1441. Viðkomandi fær þá SMS skilaboð um að þú óskir eftir símtali. Einungis í boði fyrir þá sem eru með Frelsi Símans.

Í stuttu máli

  • Sendu skilaboð á 1441 og viðkomandi fær SMS um að þú óskir eftir samtali

Kollekt

Bjóddu öðrum að borga símtalið

Þeir sem eru með GSM hjá Símanum geta boðið öðrum aðila, sem einnig er með GSM hjá Símanum að greiða fyrir símtal þeirra á milli.

Veldu *888* á undan númerinu sem þú vilt hringja í og þú færð að vita hvort viðkomandi, samþykkir að greiða fyrir símtalið eða ekki.

Í stuttu máli

  • Veldu *888* á undan númerinu sem vilt bjóða að borga símtalið

Er inneignin búin?

Ef inneignin er 50 krónur eða lægri, getur þú fengið 150 krónur lagðar inn á númerið þitt með því að senda SMS textann KLINK á símanúmerið 1441.

Upphæðin er síðan dregin af númerinu þínu næst þegar þú fyllir á Frelsið. Athugaðu að einungis er hægt að fá eitt KLINK-lán á milli áfyllinga.

Í stuttu máli

  • Sendu SMS textann KLINK á 1441 og fáðu lán

Frelsi í útlöndum

Ertu heimshornaflakkari?

Til þess að geta notað Frelsisnúmer erlendis þarftu að skrá þig í Frelsi í útlöndum, en eftir það er þetta frágengið. Símnotkun erlendis er greidd eftirá. Þú færð reglulega send SMS-skilaboð um kostnað frá erlendum farsímafyrirtækjum.

: Ertu yngri en 18 ára?

Ef þú ert yngri en 18 ára þarft að fá aðila sem er 18 ára eða eldri til að gangast í ábyrgð fyrir notkun þinni erlendis. Ábyrgðamenn fá tölvupóst með upplýsingum um notkun í útlöndum þegar þær berast frá erlendum farsímafyrirtækjum. Þessar upplýsingar geta þó verið allt að nokkurra daga gamlar. Ábyrgðarmaður getur alltaf óskað eftir því við Símann að þjónustan verði aftengd fyrir það Frelsisnúmer sem hann er í ábyrgð fyrir.

Aðrir vefir