Vertu í háhraðanetsambandi hvar og hvenær sem er á 3G svæði Símans. Kortinu er einfaldlega stungið í tölvuna og með nokkrum smellum kemstu í internetsamband.
Þú getur svo fylgst með notkun þinni á 3G netlyklinum. Veldu hnappinn „Skoða gagnanotkun„“ og sláðu númer netlykilsins og þú færð lykilnúmerið sent í hugbúnaðinn sem fylgdi.
Gerðu 6 mánaða samning við Símann og fáðu 3G netlykil á 0 kr. Ef farið er yfir innifalið gagnamagn er greitt fyrir umfram gagnamagn. Fullt verð fyrir 3G netlykil er annars 17.900 kr.
| Áskrift | Mánaðarverð | Innifalið gagnamagn | Hraði | Verð fyrir umfram MB |
|---|---|---|---|---|
| Netlykill 1 | 990 kr. | 2 GB | Allt að 5 Mbit/sek | 2,0 kr. |
| Netlykill 2 | 2.990 kr. | 7 GB | Allt að 5 Mbit/sek | 2,0 kr. |
| Netlykill 3 | 4.990 kr. | 15 GB | Allt að 5 Mbit/sek | 2,0 kr. |
Þegar 3G Netlykillinn er notaður hér á landi á netinu, er talið fyrir allt gagnamagn. Með því er átt við að skoða innlendar og erlendar síður, hvort sem þú ert að niður eða upphala efni.
Gagnanotkun erlendis er ekki innifalin í 3G áskriftarpökkum og er greitt aukalega fyrir hana. Slík notkun er kostnaðarsöm og hvetjum við þig til að kynna þér verðskrá um gagnanotkun erlendis.
Síminn er með stærsta og öruggasta dreifikerfi landsins í farsímaþjónustu. Skoðaðu kort af útbreiðslunni.