Verð fyrir MMS skilaboð er 15 kr. (innanlands) fyrir hvert skeyti og skiptir engu máli hvort sent er í númer hjá Símanum eða samkeppnisaðila.
Þar sem MMS notar GPRS til að senda og taka á móti MMS skeytum þurfa Frelsisnotendur verða að eiga að minnsta kosti 10 kr í inneign til að geta sent og tekið á móti MMS skeyti.
Athugið að ekki er nauðsynlegt að vera áskriftandi af GPRS til að geta nýtt MMS þjónustuna.
MMS sendingar frá útlöndum
Hafa ber í huga að þegar MMS skilaboð eru send, eða móttekin erlendis er um gagnanotkun að ræða (GPRS) því eru verð háð stærð skeyta, ásamt reiki á gagnanotkun í hverju landi fyrir sig. Sjá nánar: Gagnanotkun erlendis
MMS til útlanda
Hægt er að senda MMS til útlanda ef móttakandi MMS skilaboða er með íslenskt númer. Ekki er hinsvegar hægt að senda MMS úr íslensku númeri í erlend farsímanúmer.
