Talhólf

Talhólf

Talhólfið sér um að svara símanum þegar þú ert ekki heima og lætur þig vita þegar þér hafa borist skilaboð um leið og þú tekur upp símtólið þannig að þú missir ekki af neinu.

Þú getur hlustað á skilaboðin í hvaða síma sem er og valið um að láta talhólfið svara í símann þegar hann er á tali eða svara öllum hringingum. Þú getur alltaf breytt valinu með einföldum aðgerðum.


Flutningur Gerður virkur Gerður óvirkur
Alltaf *21*8800100# #21#
Ekki svarað* *61*8800100 #61#
Á tali *69*8800100# #69#

Uppsetning og notkun á talhólfi

Hringt er í 1411 til að setja talhólfið upp fyrir heimilissímann. Talvél leiðir notandann áfram í gegnum uppsetninguna en það eina sem þarf að gera er að lesa inn símsvarakveðju og velja lykilnúmer.

Hringt er í 1411 til að hlusta á skilaboðin sem berast í talhólfið. Til að hlusta á skilaboð úr öðrum símum en heimilissímanum er hringt í 8800 100, slegið inn símanúmerið sem talhólfið er tengt við, #lykilorð#.

Hringiflutningar

Til að skilaboð berist í talhólfið þá þarf að virkja hringiflutninga sem segja til um í hvaða tilvikum skilaboð eiga að berast í talhólfið.

Tilkynning um ný skilaboð

Þegar skilaboð hafa borist í talhólfið þá greinir rödd frá því þegar símtólið er tekið upp. Ef skilaboð hafa borist í talhólfið og símtólið tekið upp er sagt "Þú átt skilaboð í talhólfinu".

Faxhólf er móttöku- og geymslustaður fyrir faxsendingar sem sendar eru á faxhólfsnúmerið.

Hægt er á einfaldan hátt að hringja inn í faxhólfsnúmerið og láta það senda gögnin í faxtæki að eigin vali eða láta það á sjálfvirkan hátt senda gögnin á ákveðnum tíma dagsins. Þú getur sótt um faxhólf á Þjónustuvef


Stærsta dreifikerfið

Dreifikerfi Símans

Síminn er með stærsta dreifikerfið. Hjá okkur ertu viss um að vera á öruggum stað.

Komdu til okkar

Komdu til okkar

Skildu eftir nafnið þitt og símanúmer og leyfðu okkur að hafa samband við þig.