Beint í leiðarkerfi

Beint í leitarvél



Netvarinn

Með Netvaranum fær heimilið öflugt tæki til að útiloka óæskilegt efni á netinu og koma í veg fyrir að börn og unglingar villist þangað sem þau eiga alls ekki erindi. Auk þess útilokar Netvarinn síður sem innihalda vírusa og vefi sem villa á sér heimildir og er því góð viðbót við hefðbundnar vírusvarnir. Ef þú ert með Internetáskrift hjá Símanum þá býðst þér Netvarinn án aukagjalds.



Veldu þá síu sem hentar þínu heimili

Sía 1

Lokar fyrir síður sem innihalda barnaklám, njósnaforrit og vefi sem reyna að villa á sér heimildir eða sem gætu ætlað að stela persónuupplýsingum.

Sía 2

Lokar fyrir efni sem skilgreint er í síu 1, auk síðna sem innihalda klámfengið efni, upplýsingar um eiturlyf, fjárhættuspil, kynþáttafordóma, smekkleysu, ofbeldi eða ólöglegt efni.

Sía 3

Lokar fyrir efni sem skilgreint er í síu 1 og síu 2, auk þess að loka fyrir leiki, skráardeilisíður (P2P) og síður sem aðstoða við tölvuglæpi.


Vefhlutar

Aðrir vefir