Aðstoð
Ráðstafanir á nettengingu vegna flutninga
Ef þú ert með nettengingu hjá Símanum og ert að flytja þá geturðu beðið um flutning á tengingunni á þjónustuvefnum, hringt í 800 7000 eða komið í næstu verslun Símans. Það tekur 3-5 virka daga að flytja símanúmer (ef þú ert með númerið sem var tengt fyrir í íbúðinni), en 5 til 7 daga að flytja internettengingu.
Passa verður upp á að tengja smásíur með sama hætti og á gamla staðnum.
Hvað þýðir „Allt að xMb hraði“ í interneti?
Auglýstur hraði er hámarkshraði við bestu mögulegu aðstæður. Síminn getur því miður ekki tryggt að allir þeir sem sækja um ADSL fái hámarkshraða.
Af hverju mælist hraði minni þegar ég hala niður efni en áskriftarleiðin mín segir til um?
Munurinn liggur í mælieiningunum bits eða bytes. Hraðinn á internettengingum er oftast mældur og ávallt auglýstur í kílóbitum, en forrit líkt og Internet Explorer sýna oftast niðurhalshraðann í kílóbætum.
Tökum sem dæmi að þú sért með hraðann ADSL 8000 en sérð aðeins 950 kb í tölvunni þinni. Í einu bæti (byte) eru átta bitar (bits). Til þess að sjá hversu mikinn hraða þú ert að fá í kílóbitum þá margfaldarðu 950 með 8, sem gerir 7600 kílóbitar.
Þó þessi tali nái ekki alveg upp í 8000 þá er það ekki óeðlilegt, hraði tengingar aðilans sem þú ert að ná í gögnin frá er stundum ekki nægur, stundum sýna forrit eins og Internet Explorer ekki rauntímaupplýsingar heldur meðaltal miðað við nokkrar sekúndur og hraði sambands er reiknaður við bestu mögulegu skilyrði en undir venjulegum kringumstæðum eru sveiflur eðlilegar.
Hvernig er erlent niðurhal mælt?
Allt efni sem sótt er frá vefþjónum sem staðsettir eru erlendis telst vera erlent niðurhal. Þótt vefþjónn hafi endinguna .is gæti hann verið hýstur erlendis.
Allt efni sem skoðað er á erlendum síðum á internetinu hvort sem að það er heimasíða, myndband eða tónlist telst sem niðurhal þar sem að allt það efni sem að tölva birtir á tölvuskjá eru gögn sem verður að hala niður og vinna úr til að geta birt. Í stuttu máli er semsagt ekki hægt að vafra um Internetið án þess að vera að niðurhala.
Hvar get ég fundið internet lykilorðin mín?
Til þess að vernda öryggi lykilorðs þíns getur þú ekki fengið það uppgefið í gegnum síma. Þú getur hins vegar nálgast það inni á þjónustuvefnum. Einnig er hægt er að fá lykilorðið sent í bréfapósti á heimili rétthafa, eða að þú getur komið í verslun Símans og fengið lykilorðið uppgefið gegn framvísun skilríkja.
Get ég breytt Internet lykilorðinu mínu?
Já, þú getur breytt lykilorðinu þínu ef þú manst ekki fyrra lykilorð. Einnig geturðu haft samband við þjónustuver Símans 800 7000, og þjónustufulltrúar geta breytt lykilorði þínu ef þú manst eldra lykilorðið, eða komið í verslun Símans og fengið því breytt gegn framvísun skilríkja.
Sambandsleysi við þráðlausa netið
Þráðlaust samband er háð því að lítil eða engin truflun sé á þeirri tíðni sem sambandið vinnur á. Dæmi um það sem getur truflað sambandið:
- Þráðlausir símar
- Önnur þráðlaus net
- Örbylgjuofnar (meðan þeir eru í gangi)
- Hreyfiskynjarar
Einnig getur staðsetning beinis og tölvu átt hlut í sambandsleysinu. Þráðlaust net er hannað fyrir beina sjónlínu og það er erfitt að ná sambandi á milli hæða eða þegar eitthvað er fyrir, t.d. veggur, sófi eða aðrir hlutir sem geta deyft merkið.
Slit á internettengingu?
Ef ADSL-beinirinn (e. router) er búin að vera í gangi í marga daga er gott að endurræsa hann. Það sama á við um sjónvarpsmyndlykil, en allur tölvubúnaður hefur gott af því að vera endurræstur af og til.
BeinirinnBeinirinn (e. router) þarf að vera búinn nýjustu uppfærslunni. Uppfærslur eru mikilvægar þar sem þær eru sérstaklega gerðar til að bæta þjónustu og auka stöðugleika kerfisins. Hægt er að sækja nýjustu uppfærslurnar hér. Aðstoð er einnig veitt í 8007000.
Ethernet-snúraEthernet-snúrur (sjá mynd) (einnig nefndar tölvukapall, Cat5 og lan-snúra) eru oft gerðar á staðnum. Stundum eru tengin framan á snúrunni (glæru kubbarnir, RJ-45) ekki nógu vel hert og eiga vírarnir því til að renna úr tenginu.
- Byrja á því að ýta snúrunni betur upp í tengin.
- Til að ganga úr skugga um hvort vandamálið tengist snúrunni er gott að skipta um snúru ef mögulegt er.

Viðbrögð ef nettenging virkar ekki
Algengasta lausnin er að endurræsa beini og tölvu og athuga hvort samband komist ekki á við það. Ef um nýja tengingu er að ræða þarf að athuga hvort smásía sé tengd við beini. Smásíur eiga aðeins að tengjast við síma og beinir á að fá hreint samband við inntakið.
Athugið einnig hvaða ljós eru í gangi á beininum:
- Ekkert ljós - Athuga hvort hann sé rétt tengdur við rafmagn eða hvort hann sé að fá nóg rafmagn.
- Rautt/Appelsínugult Power-ljós (SpeedTouch 585) - Prufa að slökkva á honum í smá stund og kveikja svo aftur.
- Sync/DSL ljós úti eða blikkandi - Athuga þarf hvort beinir sé rétt tengdur við inntak, prufa að taka alla síma úr sambandi og aðeins hafa beininn í sambandi (hann má ekki tengjast í gegnum smásíu).
Rautt/appelsínugult ljós birtist á beininum og ég kemst ekki á netið
Þetta kemur fyrir þegar rafmagnið við beininn dettur út í skamma stund. Það ætti að vera nóg að slökkva á honum og kveikja síðan aftur eftir nokkrar mínútur. Athugaðu að getur tekið beininn rúma mínútu að komast í gang aftur. Ef vandræðin eru viðvarandi skaltu hafa samband við Þjónustuver Símans í síma 800 7000.
Navigation tree
Leiðarkerfi
Í boði
3G net í símanum
Kláraðu málið
Aðstoð
Kláraðu málið
3G net í tölvunni
Þjónusta
Kláraðu málið
Í boði
Farsímar
Þetta er sniðugt


