Góð ráð um örugga netnotkun
Þráðlaus heimanet
Flestar tölvur tengjast ADSL beini með þráðlausum hætti, og er þá þráðlausa merkið gjarnan að berast út fyrir heimili viðskiptavina. Í flestum tilvikum eru þráðlausu netin varin með öryggislyklum, en hættan á því að óprúttnir aðilar reyni að brjótast inn á netið er alltaf til staðar.
Öryggisuppfærslur frá Microsoft
Microsoft sendir reglulega frá sér mikilvægar öryggisuppfærslur fyrir Windows stýrikerfin, og má finna uppfærslunnar á vef þeirra eða að fara í Control Panel og velja þar "Automatic Updates" og stilla þar sjálfvirkar uppfærslur þegar þær eru til staðar.
Vírusvarnir og eldveggir
Tölvuvírusar eru algengt vandamál og geta valdið alvarlegu tjóni á búnaði. Vírusum er oftast dreift sem viðhengjum í tölvupósti. Ef sýkt viðhengi er opnað smitast tölvan og oftast nær vírusinn að áframsenda sig á önnur netföng í póstforritinu þínu og þannig margfalda sig. Eyddu grunsamlegum pósti strax og opnaðu ekki viðhengi. Gæta þarf að því að eyða pósti síðan úr "Deleted items" möppunni í póstforritinu
Síminn síar út sýktan póst sem berst í pósthólf sem fylgja netáskrift hjá Símanum. Vírusar geta sýkt tölvur með pósti sem berst um önnur póstföng eða í gegnum vefsíður.
Mælt er með því að þú setjir upp vírusvarnir og eldvegg á tölvuna þína til að hindra að utanaðkomandi aðilar geti komist inn á tengingar og á tölvuna þína. Síminn hefur að bjóða slíka þjónustu, þ.e. Öryggispakki Símans.
Einelti í tölvupósti
Ef þér berst tölvupóstur sem er á einhvern hátt ógnandi eða inniheldur efni sem túlka má sem einelti skaltu láta tafarlaust vita af því. Hafðu samband við internetþjónustuaðila sem netfang sendandans er fengið hjá, en oftast má sjá það fyrir aftan @ merkið, til dæmis er notandi@simnet.is notandi hjá Símanum. Kvartaðu við þjónustuaðilann og tilkynntu honum að umræddur aðili sé að misnota netaðganginn sinn.
Flest póstforrit er hægt að stilla þannig að hægt er að eyða sjálfvirkt pósti frá tilteknum aðila. Ef tölvupóstur er sérstaklega ógnandi og efni hans gæti varðað við lög skaltu hafa samband við lögreglu. Prentaðu bréfið ef þú hefur tök á því og geymdu sem sönnunargagn.
Ruslpóstur og varnir gegn honum
Ruslpóstur er oftast óumbeðinn og fullur af gylliboðum eða klámefni. Ekki skal svara slíkum pósti, því þá fær sendandi vitneskju um að netfangið sé virkt og heldur áfram að senda á þig. Einnig gerir afskráning af netfangalistum netfangið þitt verðmætt fyrir sölumenn því þá geta þeir selt öðrum aðilum netfangið þitt og sagt með vissu að þú skoðir allan póst
- Skráðu ekki netfang á vefsíðum sem lofa reglulegum sendingum, til dæmis bröndurum eða stjörnuspám.
- Oft er boðið uppá að senda vinum upplýsingar um vefsíður. Ef þú gerir það ertu í raun að vinna fyrir netfangasafnara og líklegt að þeir munu selja markaðsfyrirtæki netfangalistann. Af sömu ástæðum er óæskilegt að skrá netföng í gestabækur.
- Keðjubréf eru á stöðugu sveimi á Netinu og best er að svara þeim ekki og alls ekki að senda áfram til annarra
Navigation tree
Leiðarkerfi
Leiðir í boði
3G Netið í símanum
Kláraðu málið
Leiðir í boði
Þjónusta
Kláraðu málið
Kláraðu málið
Frábært sjónvarpsefni
Kláraðu málið
Í boði
Vinsælt
Þetta er sniðugt
