Öryggispakki Símans

Öryggispakki Símans

Heildarlausn fyrir heimilistölvur

Öryggispakki Símans inniheldur vírusvörn, ruslpóstsíu, eldvegg og gerir þér kleift að setja upp mismunandi aðgangsstýringar að ákveðnu efni á netinu.

Þegar þú notar netið skapast hætta á því að tölvan þín smitist af tölvuveirum sem geta skaðað búnaðinn og gögn sem á henni eru geymd. Auk þess geta tölvuþrjótar notfært sér óvarðar tölvur til fjöldapóstsendinga eða komast yfir lykilorð. Með Öryggispakka Símans eykur þú hins vegar öryggi þitt á internetinu.

Sækja Öryggispakkann

Leiðbeiningar um notkun á þráðlausum netum
Góð ráð um almenna netnotkun

Kostir Öryggispakkans

Öryggispakkinn leitar eftir og eyðir út vírusum þegar þú opnar, afritar, færir eða vistar skjal í tölvunni, auk þess að eyða út trójuhestum og ormum.

Ruslpóstsía skannar tölvupóst og viðhengi, bæði við móttöku og þegar hann er sendur. Eldveggur ver einnig tölvuna þína og gerir hana svo að segja „ósýnilega“ öðrum tölvum á netinu.

Eyðir út njósnaforritum (e. spyware og adware), sem reyna að fylgst með netnotkun til að komast yfir viðkvæmar upplýsingar eins og lykilorð og kortanúmer, eða hlera samskipti tölvunnar.

Fjöldi Verð
1 leyfi af Öryggispakkanum
252 kr. á mánuði
2 leyf af Öryggispakkanumi 474 kr. á mánuði
3 leyfi af Öryggispakkanum 665 kr. á mánuði
4 leyfi af Öryggispakkanum 857 kr. á mánuði
5 leyfi af Öryggispakkanum 1048 kr. á mánuði

Aðrir vefir