
Á hverju ári er fjölmörgum fartölvum stolið á Íslandi. Tölvuvari er hugbúnaður sem komið er fyrir í tölvunni þinni, og sem staðsetur hana ef henni er stolið og eykur þannig líkurnar á því að hægt sé að endurheimta hana.
Smelltu á „Sækja Tölvuvara“ til að hlaða niður hugbúnaðinum í tölvuna. Tölvuvarinn vinnur sem þjónusta og tekur því lítið til sín í vinnslu. Nánar um uppsetningu Tölvuvara..
Sé tölva tilkynnt stolin, sendir hún frá sér staðsetningarmerki þegar hún tengist internetinu og getur því lögreglan gengið að tölvunni vísri.
Ekki er hægt að forsníða harða diskinn í tölvu sem er með Tölvuvara, jafnvel þó "fdisk" skipanir sé notaðar, sem eykur líkur á að hún skili sér með gögnum.
Ef tölvunni er stolið skal tilkynna stuldinn með því að hringja í þjónustuver Símans í síma 800 7000 eða velja „Tilkynna stolna tölvu“ hnappinn hér á síðunni. Tölvan sendir þá frá sér staðsetningarmerki í hvert sinni er hún tengist internetinu, án þess að þjófurinn verði þess var. Upplýsingunum er komið til lögreglu sem getur gengið að tölvunni vísri hvort sem hún er á Íslandi eða komin í umferð erlendis.
Ef keypt er fleiri en eitt leyfi er veitur afsláttur.
| Fjöldi | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | Samtals á mánuði |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 232 kr. | 232 kr | ||||
| 2 | 232 kr. | 192 kr. | 424 kr | |||
| 3 | 232 kr. | 192 kr. | 192 kr. | 616 kr. | ||
| 4 | 232 kr. | 192 kr. | 192 kr. | 192 kr. | 808 kr | |
| 5 | 232 kr. | 192 kr. | 192 kr. | 192 kr. | 192 kr. | 1000 kr |
Viltu slást í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum? Hringdu í síma 800 7000, komdu í verslanir Símans eða sendu fyrirspurn.
Þú finnur upplýsingar um það helsta sem tengist netnotkun, eins og hraðapróf, auk svara við algengustu spurningum.