Vantar þig upplýsingar um breytingar á breiðbandinu?

Síminn er að vinna að breytingum á sjónvarpsdreifingu þar sem útsendingar hafa hingað til verið um Breiðband Símans. Síminn mun skipta út breiðbandstengingunni og nýta ljósleiðarann til gagnatenginga jafnt sem sjónvarpsútsendinga. Með Ljósneti Símans verður hægt að bjóða upp á aukinn hraða á Internetinu auk meiri möguleika í sjónvarpsþjónustu.

Breytingarnar munu hafa áhrif á heimili sem voru með breiðbandið þar sem sjónvarpsútsendingar verða ekki með sama hætti og áður. Sjónvarp Símans verður nú t.d. aðgengilegt fyrir þá sem hafa nettengingu hjá Símanum. Núverandi sjónvarpsdreifing mun sem sagt hætta en ýmsar nýjar leiðir eru í boði fyrir heimilið. Frekari upplýsingar má fá hjá þjónustuveri Símans 800 7000

Viltu vita hvort ljósnet er komið í götuna hjá þér?

Ef þú ert með breiðbandslykil og nettengingu frá Símanum

Starfsmenn Símans skipta út breiðbandslykli frá Símanum fyrir nýjan stafrænan myndlykil þér að kostnaðarlausu. Til að tryggja útsendingar í fleiri en eitt sjónvarp þarf að greiða fyrir aukamyndlykil hjá Símanum.

Ef þú ert með breiðbandslykil en ekki með nettengingu frá Símanum

Síminn býður upp á ýmsa nettengingarkosti á hagstæðu verði. Þjónustufulltrúi Símans getur aðstoðað þig við að velja þá leið sem best hentar netnotkun heimilisins. Síðan munu starfsmenn Símans skipta út breiðbandslykli frá Símanum fyrir nýjan stafrænan myndlykil þér að kostnaðarlausu.

Ef þú ert með loftnet

Þá gætir þú þurft að endurstilla sjónvarpið (finna rásirnar). Einnig er hægt að kaupa Internettengingu frá Símanum sem gefur kost á Sjónvarpi Símans í bestu mögulegu gæðum.

Ef þú ert hvorki með loftnet né myndlykil frá Símanum

Þá eru ýmsir möguleikar í boði. Þú gætir sett loftnet á húsið eða fengið Sjónvarp Símans í gegnum nettengingu frá Símanum.

Aðrir vefir