Vottanir Símans

Microsoft Gold Certified Partner

Microsoft Gold Certified Partner

Síminn er gullvottaður samstarfsaðili Microsoft á Íslandi (e. Gold Certified Partner). Síminn er því talinn til þeirra samstarfsaðila sem standa fremstir í þjónustu og stuðningi við þær lausnir sem Microsoft býður uppá. Gullvottun er aðalsmerki góðrar þjónustu og um leið staðfesting á þeirri miklu þekkingu og reynslu sem starfsmenn Símans búa yfir. Vottunin er veitt í nokkrum flokkum eftir sérþekkingu starfsmanna samstarfsaðila og er Síminn með vottun í eftirfarandi flokkum:

  • Advanced Infrastructure Solutions
    Þróun og innleiðing sérhæfðra Microsoft hugbúnaðarlausna.
  • Networking Infrastructure Solutions
    Lausnir sem byggja á Windows Server stýrikerfinu.
  • Information Worker Solutions
    Office hugbúnaðarlausnir, Exchange, Sharepoint og Office Live Communications Server.

Small Business Specialist

Microsoft Small Business Specialist

Síminn er með sérstaka viðurkenningu í Small Business Specialist flokknum. Hún staðfestir sérhæfingu í þjónustu við Microsoft lausnir hjá smærri fyrirtækjum en styrkur Símans liggur ekki hvað síst í þjónustu og lausnum fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki.

Í stuttu máli

  • Sérhæfing í Microsoft lausnum
  • Þjónusta við smærri fyrirtæki

Premier samningur

Premier Support

Síminn er eini gullvottaði samstarfsaðili Microsoft í upplýsingatæknigeiranum á Íslandi sem jafnframt er með svokallaðan Premier samning við Microsoft. Premier er þjónustusamningur með afar háu þjónustustigi sem tryggir beinan og tafarlausan aðgang að færustu sérfræðingum Microsoft á heimsvísu við úrlausn vandamála.

Meira: Um gullvottunina og vottaða samstarfsaðila Microsoft á Íslandi.

Í stuttu máli

  • Hátt þjónustustig
  • Færustu sérfræðingar

Cisco Powered vottun

Cisco Powered vottun

Síminn er eini IP þjónustusali á Íslandi sem hefur Cisco Powered vottun. Cisco Powered þýðir að þjónusta IPnets Símans er veitt með hágæða netbúnaði frá Cisco Systems sem er leiðandi framleiðandi IP netbúnaðar á heimsvísu. Færustu sérfræðingar Cisco Systems hafa yfirfarið allan búnað IPnets Símans, tegund búnaðar, hugbúnað, stillingar og nethögun til þess að tryggja að öryggi og gæði séu framúrskarandi.

Meira: Cisco Powered vottun Símans

Í stuttu máli

  • Vottun búnaðar og þjónustu
  • Framúrskarandi öryggi og gæði

Vottun á stjórnkerfi upplýsingaöryggis ISO 27001

Vottun á stjórnkerfi upplýsingaöryggis ISO 27001

Starfsemi hýsingarrekstrar Símans er vottuð samkvæmt ISO 27001:2005 staðlinum en hann tilgreinir starfsaðferðir og reglur sem viðhafa skal við stjórnun upplýsingaöryggis. ISO vottun Símans nær yfir allan hýsingarrekstur Símans, rekstur, sölu og þjónustu. Öll starfsemi samræmist staðlinum og er tekin út árlega af KPMG.

nánar

Í stuttu máli

  • Vottun á starfsaðferðum
  • Stjórnun upplýsingaöryggis

Síminn (áður ANZA) var fyrst fyrirtækja á Íslandi til að fá vottun samkvæmt þessum staðli en hann veitir viðskiptavinum fullvissu um það að fyllsta öryggis sé gætt við vörslu og meðferð gagna í meðförum Símans sem og í öllum rekstri og þjónustu við viðskiptavini. Gerðar eru ítarlegar endurheimtaráætlanir að undangengnu áhættumati á öllum sviðum rekstrar til þess að rekstraröryggi sé tryggt með fullnægjandi hætti.

Vottun samkvæmt. þessum staðli er aðalsmerki hágæða þjónustuaðila og alger forsenda þjónustu við kröfuharða viðskiptavini.

Aðrir vefir