ISDN stofntenging

Stafræn gögn gegnum símalínu

Stofntengingar eru góður kostur þar sem gerð er krafa um að mörg samhliða símtöl geti átt sér stað og eru innvalsseríur í flestum tilvikum settar á stofntengingar. Auk þess að stofntengingar bjóði upp á mörg samhliða símtöl er rekstraröryggi þeirra hátt

Einkasímkerfi er dæmigerður búnaður sem nýtir stofntengingu. Stofntenging býður upp á 12 rásir eða 30 rásir (fjöldi notenda sem geta hringt eða tekið á móti símtölum í einu). Með tengingunni geta fyrirtæki keypt hundrað númera seríu.

Verðskrá fyrir ISDN stofntengingu
Verðskrá fyrir Innval

Sítenging við posann

Með ISDN posum er náð fram hámarkshraða og hagkvæmni. Það er hægt með því að nota allt það besta sem ISDN stafræna símalausnin getur boðið upp á.

ISDN posar eru sítengdir við kerfi Símans og eru því alltaf tilbúnir að ná í heimild. Þessi tilhögun styttir tímann sem tekur að ná í hverja heimild og þannig er hægt að spara umtalsverða fjárhæðir. ISDN stafræn grunntenging stóreykur því afköst á álagspunktum og bætir verulega þjónustu við viðskiptavininn. Heimildarbeiðni tekur aðeins 3-5 sekúndur í stað 20-30 sekúnda

Aðrir vefir