INmobil
INmobil er tölvupóstþjónusta, sem er ætluð sjófarendum og öðrum sem ekki geta nýtt sér hefðbundnar tengingar við Internetið. Þjónustan er veitt með samvinnu Snerpu, Símans og Radíómiðunar.
Snerpa er internetveita sem um árabil hefur veitt sjómönnum þjónustu í gegnum gervihnött. Radiómiðun er fyrirtæki í eigu Símans sem sérhæfir sig í skipafjarskiptum og uppsetningum og viðhaldsþjónustu fyrir skip og báta. INmobil getur nýtt bæði almenn farsímakerfi eða gerfihnattasambönd til að flytja póst og önnur gögn á milli notenda og Internetsins á öruggan hátt. INmobil byggir á því að samnýta tengingar fyrir marga notendur og hægt er að skipta kostnaði niður eftir notkun hvers og eins.
Nánari upplýsingar um InMobil þjónustuna gefa Radíómiðun ehf. í síma 511 1010 eða þjónustuver Símans 800 4000. Einnig er bent á heimasíðuna inmobil.net
Komdu til okkar
Vertu í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum. Hringdu í síma 800 4000 eða sendu fyrirspurn.
Senda fyrirspurn