SMS Magnsendingar er þjónusta sem hentar fyrirtækjum sem vilja hafa möguleika á því senda SMS skeyti á hópa eða einstaklinga á öruggan og einfaldan hátt.
Mögulegt er að senda SMS skeyti á allt að 50 aðila í einu, en skilaboðin geta verið að hámarki 480 stafir. Símanúmerin eru skrifuð í röð með semikommu á milli (8000062; 8000063; 8000064). Eitt SMS skeyti inniheldur 160 stafi, en ef skilaboðin eru lengri skiptist skeytið niður í allt að 3 skilaboð. Þannig skiptist t.d. 480 stafa skeyti niður í 3 skilaboð, en hvert skeyti tilgreinir þá númer skeytisins (“(1/3) texti...” - “(2/3) áframhaldandi texti...” - “(3/3) áframhaldandi texti...”).
Hægt er að velja um tvær leiðir til að nota þjónustuna. Í fyrsta lagi nota vefsíðu sem Síminn leggur til (sjá mynd), eða látið hanna sérstakt viðmót með eiginleikum sem hentar hverjum viðskiptavini fyrir sig (þá á ábyrgð hvers og eins).
Notandinn nálgast þjónustuna með sérstöku notendanafni og lykilorði, en hægt að senda SMS Magnsendingar frá hvaða tölvu sem er, að því skilyrði uppfylltu að hún sé tengd Interneti. Slóðin er www.vit.is/laif.
Hægt er að fylgjast með stöðu SMS sendinga notandans þar sem mögulegt er að skoða hvort skeyti hafi verið móttekið eða ekki. Taka verður fram þegar skeytið er sent hvort notandinn vilji fylgjast með skeytinu eða ekki (afhendingarkvittun - já).
Magnsendingar er hægt að senda á hvaða GSM númer sem er, þ.e. hvort sem það er til viðskiptavina Símans, eða annarra símafyrirtækja (innlendra sem erlendra).
Ólíkt öðrum leiðum til SMS sendinga er reikningurinn ekki bundinn við GSM síma sendanda, heldur fyrirtækinu sjálfu. Reikningur er því sendur mánaðarlega fyrir heildarnotkun á SMS magnsendingum.
Sýnishorn af vefviðmóti
