Skilaboðaþjónusta

Síminn hefur að bjóða frábært úrval af skilaboðaþjónustu, hvort sem er fyrir mynd-, hljóð- eða textaskilaboð. Kynntu þér málið.

Vantar stillingar í símann? Fáðu með einni aðgerð stillingar fyrir internetnotkun, streymi og myndskilaboða (MMS) í farsíma.

Sækja stillingar

Vef SMS

Vef SMS er þægileg leið til að senda skilaboð á vini og kunningja, þar sem þú getur sent á marga aðila samtímis. Skilaboðin koma frá númerinu þínu og því geta viðtakendur svarað þér tilbaka.

meira um Vef SMS
Tengiliðir

Skráðu símanúmer vina og ættingja í tengiliðaskrána og þú gengur að listanum alltaf vísum.

Þægilegt í notkun

Sláðu inn fyrstu stafi nafns eða símanúmers og Vef SMS kemur með uppástungur úr listanum.

Sendu á marga í einu

Þú getur búið til hópa og þannig sent mörgum vinum þínum skeyti samtímis.

Boði

Boði er skilaboðaþjónusta sem Síminn býður viðskiptavinum sínum í samstarfi við Trackwell. Þjónustan gerir notendum kleift að senda töluð skilaboð til margra í einu og fá svör fljótt. Á vefnum er hægt að skoða hverjir fengu skilaboðin, hvaða svör þeir gáfu og margt fleira.

meira um Boða

Hægt er að senda skilaboð í öll símkerfin þ.e. GSM eða almenna símkerfið. Aðeins er rukkað fyrir hringingar eða send skilaboð. Hægt er að skrá sig inn á vefinn án nokkurar gjaldfærslu eða skuldbindinga.

  • Ekkert mánaðargjald, eingöngu greitt fyrir notkun.
  • Þú ræður hvenær skilaboð eiga að berast.
  • Þú býrð þér til hópa til að senda skilaboð á.
  • Þú velur hvernig þú vilt fá staðfestingu frá móttakendum.
  • Þú getur fengið skýrslu um stöðu út hringinga, svörun við hringingum og staðfestingu á skilaboðum.
  • Athugið að Frelsis notendur geta ekki notað vefviðmót Boða.

SMS magnsendingar

SMS magnsendingar gera fyrirtækjum kleift að senda SMS skilaboð til allt að 50 aðila í einu, bæði innanlands og utan. Skilaboðin geta verið að hámarki 462 stafabil. Hægt er að nýta sér vefaðgang Símans eða hanna eigið viðmót og tengja lausnina þannig við önnur kerfi.

nánar um SMS magnsendingar

Kostir SMS magnsendinga

Hægt er að senda SMS-skeyti úr vefviðmóti okkar, en einnig er hægt að tengja þjónustuna við lager- og umsýslukerfi fyrirtækja, sem gerir mögulegt að senda sjálfkrafa skilaboð til viðskiptavina þegar vara kemur á lager eða pizzan tilbúin, svo dæmi sé nefnd.

Með SMS-magnsendingum er hægt að senda allt að 1.000 SMS í einni sendingu og hægt að afrtita símanúmer úr skjali beint inn í vefviðmótið.

Fyrirtæki geta valið hvaða nafn birtist sem sendandi skilaboða, eins og til dæmis „SIMINN“.

Umsókn

Einfalt er að sækja um þjónustuna með því að fylla út rafræna umsókn hér á síðunni. Afgreiðsla umsóknarinnar tekur um þrjá daga.

Verð

Greitt er mánaðargjald fyrir þjónustuna, 5.500 kr. m.vsk. Einnig er greitt fyrir hvert skeyti, 7 kr.

Tölvutalhólf Símans

Með Tölvutalhólfi Símans færðu talhólfsskilaboð sem hljóðskrá í tölvupósti og getur hlustað á þau í tölvunni í stað þess að hringja í talhólfið.

meira um Tölvutalhólf

Þægilegt aðgengi að skilaboðum

Tölvutalhólf gerir notendum kleift að geyma skilaboðin á tölvutæku formi og því er mögulegt að hlusta, skoða eða eyða þeim að vild.

Ekkert mánaðargjald er af þessari þjónustu

Hægt að fá fax á tölvutæku formi

Þjónustan býður upp á að notendur fái sent fax í tölvupósti og geti skoðað þau á skjánum. Hægt er að geyma föx á tölvutæku formi og hafa þannig aðgang að þeim eftir hentugleika.

Pósturinn í símanum

Þú þarft ekki að vera bundin af því að komast í tölvu til að geta lesið og sent tölvupóst. Hægt er að komast í tölvupóstinn á flestum símtækjum.

meira um Tölvupóst í símanum

Virkar fyrir

  • Símnet póst
  • Android, Symbian, IPhone
  • Gmail, Hotmail

Ertu með Símnet póst frá Símanum?

Þá slærðu inn slóðina http://postur.simnet.is/m í vafra farsímans og þannig kemstu í pósthólfið þitt úr símanum. Sértu með nettengingu hjá Símanum þá greiðirðu 0 kr. fyrir að skoða Símnet póst úr símanum þínum, á Íslandi. Í útlöndum gilda verð fyrir gagnanotkun erlendis.

Þú getur einnig ...

Sótt afrit af póstinum þínum beint í símann, ef hann hefur innbyggt tölvupóstforrit. Til þess þarf þó internetveitan þín að bjóða upp á POP3 eða IMAP tölvupóst.

Nú eða farið á netið í símanum og slegið inn m.gmail.com eða mobile.msn.com/hm ef þú notar Gmail eða Hotmail póst.

Hólfaþjónusta

Allt sem þú þarft að vita um notkun á hólfaþjónustu, ásamt leiðbeiningum um uppsetningu.

meira um Hólfaþjónustu

Í boði

  • Talhólf
  • Svarhólf
  • Faxhólf

Talhólf

Talhólf tekur á móti skilaboðum þegar ekki er svarað í símann, hann er á tali, slökkt á honum eða síminn utan þjónustusvæðis. Þú færð svo SMS þegar ný skilaboð berast.

Til að hlusta á skilaboðin í talhólfinu, hringirðu í gjaldfrjálst númer 1411 úr símanum. Til að hlusta á skilaboð í útlöndum hringirðu í +3548800100 og slærð inn GSM númer og því næst #lykilnúmer#.

Svarhólf

Svarhólf geymir upplýsingar eða skilaboð sem svarhólfseigandi vill koma á framfæri, en sá sem hringir getur ekki skilið eftir skilaboð. Upplýsingarnar eru lesnar upp þrisvar sinnum.

Svarhólfseigandi getur annað hvort látið símanotendur hringja beint í svarhólf sitt eða flutt viðkomandi símtöl í svarhólf með símtalsflutningi.

Faxhólf

Faxhólf er hluti af talhólfaþjónustunni og er móttöku- og geymslustaður fyrir faxsendingar sem sendar eru á faxhólfsnúmerið. Á einfaldan hátt er hægt að hringja í númerið og fá gögn send í faxtækið. Einnig er hægt að senda gögn í faxtæki á sjálfvirkan hátt.

Talhólf í MMS

Talhólf í MMS er þægileg leið til að hlusta á talhólfsskilaboð í farsímanum, í stað þess að hringja í hólfið. Og það besta er að þjónustan kostar ekkert, hvorki að skrá sig né að fá MMS skeytið.

meira um Talhólf í MMS

Hvernig virkar Talhólf í MMS?

Þegar einhver hefur talað inn skilaboð á talhólfið þitt, þá færðu MMS skeyti í stað þess að þurfa hringja í hólfið og athuga hvort skilaboð bíða þín.

Skilaboðin geymast í innhólfinu í símanum þínum með öðrum SMS og MMS skilaboðum, og þannig getur þú hlustað á skeytið eins oft og þú vilt. Þú getur einnig áframsent skilaboðin á þriðja aðila.

Til að nota Talhólf í MMS þarftu að skrá þig í þjónustuna hér á síðunni, vera með virkt talhólf og MMS stillingar í símtækinu.

Nánar um skilaboðin

Skilaboðin eru aðgengileg með því að hringja í 1411 og gildir þá einu hvort þú sért búin að hlusta á þau í gegnum Talhólfið eða ekki.

Skilaboðin mega ekki vera lengri en mínúta en þá kemur SMS skeyti sem lætur þig vita að þú eigir talhólfsskilaboð og er þá hægt að hringja í 1411.

Tölvupóstur í SMS

Þjónusta sem gerir kleift að móttaka SMS skeyti sem sent er frá ákveðnum netföngum.

meira um tölvupóst í SMS

Þægileg þjónusta

Tölvupóstur í SMS er kjörin leið fyrir þá sem þurfa að vakta sérstaklega póst frá titeknum netföngum, til dæmis fyrir fyrirtæki til að vakta tölvubúnað.

Þar sem móttakendur greiða fyrir SMS skeytin, geta þeir komið í veg fyrir að fá SMS úr tölvupósti í símann sinn.

Nánar

Þú skráir einungis þau netföng sem þú samþykkir, en ekki er hægt að senda SMS í símann frá öðrum netföngum en þeim sem þú hefur samþykkt.

Myndskilaboð

Sendu myndir, texta og hljóð úr símanum. Símtækið þitt þarf þá að styðji myndskilaboð og vera með til þess gerðar stillingar. Einnig er hægt að senda MMS á netfang.

Ef þú ert ekki með síma sem styður MMS en fékkst send skilaboð um að það bíði MMS mynd eftir þér, þá geturðu sótt hana hér til hliðar.

MMS notkun erlendis

MMS til útlanda

Hægt er að senda MMS til útlanda ef móttakandi MMS skilaboða er með íslenskt númer. Ekki er hins vegar hægt að senda MMS úr íslensku númeri í erlend farsímanúmer.

Kostnaður

Hafa skal í huga að önnur verð gilda fyrir notkun á myndskilaboðum erlendis. Sjá útlandaverð.

Aðrir vefir