Útlönd

Kostnaður við símnotkun erlendis

Sláðu inn heiti lands í reitinn hér fyrir ofan til að sjá kostnað við símtöl í landinu.

Viltu vita kostnað við að fara á netið í símanum erlendis?

Þú í útlöndum

Ódýrari símtöl í útlöndum

Ef þú ert í farsímaáskrift hjá Símanum, þá ættirðu að skrá þig í þjónustuna Þú í útlöndum, en þannig áttu kost á að hringja til 34 landa fyrir sama verð og innanlands.

nánar

Löndin

Austurríki, Belgía, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Færeyjar, Gíbraltar, Grikkland, Guadalope, Holland, Írland, Ítalía, Kýpur, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland, Þýskaland.

Verð

  • Mínútugjald 12 kr. pr. mín. Ef hringt er í síma hjá öðrum en Símanum þá er mínútugjaldið 21,70 kr.
  • Upphafsgjald 159 kr. (upphafsgjald reiknast aftur á 20 mín fresti). Gildir fyrir símtöl til Íslands.
  • Fyrir símtöl innan þess lands sem viðkomandi er staddur í þá er mínútugjaldið 21,70 kr. Upphafsgjald er 159 kr.
  • Móttekin símtöl erlendis, fast gjald 159 kr. fyrir símtalið.
  • Verð fyrir SMS og símtöl og SMS til annarra landa fer eftir verðskrá hvers lands fyrir sig.
  • Frítt innan kennitölu eða símtöl í vini á bara við á Íslandi en ekki þegar farsími er notaður erlendis.

Símnotkun

Að taka á móti símtölum eða hringja heim

Þegar þú ert í útlöndum er í flestum tilfellum ódýrara að taka á móti símtölum að heiman en að hringja heim. Mikilvægt er að kynna sér hvort viðbótargjald bætist við móttekin símtöl hjá viðkomandi fjarskiptafyrirtæki.

meira

Nánar

  • Móttekin símtöl
  • Símtöl milli íslenskra síma

Símtöl milli íslenskra síma erlendis

Ef hringt er úr einum íslenskum farsíma í annan í útlöndum greiðir sá sem hringir fyrir símtal til Íslands og sá sem hringt er í fyrir símtal frá Íslandi til viðkomandi lands. Símtalið fer sem sagt fyrst til Íslands og svo til útlanda eins og um millilandasímtal sé að ræða.

Skilaboðaþjónusta

SMS notkun erlendis

Það getur verið góður kostur að nota SMS skilaboð en þó skal hafa í huga að kostnaður við slíkar sendingar er meiri frá útlöndum en á Íslandi og því gæti verið hagkvæmara að hringja en að senda mörg SMS.

meira um notkun á MMS og Talhólf

Notkun

    Smáskilaboð (SMS)
  • Myndskilaboð (MMS)
  • Talhólf

MMS notkun

Þegar MMS skilaboð eru send erlendis þá er um gagnanotkun að ræða, og slíkt getur verið kostnaðarsamt ef skeytin eru stór. Kynnið ykkur verð fyrir gagnanotkun erlendis. Hægt er að senda MMS til útlanda ef móttakandi MMS skilaboða er með íslenskt númer. Ekki er hinsvegar hægt að senda MMS úr íslensku númeri í erlend farsímanúmer.

Talhólf

Gott sparnaðarráð er að aftengja talhólfið áður en þú ferð til útlanda. Ástæðan er sú að þegar þú ert í útlöndum greiðir þú fyrir símtöl sem enda í talhólfinu þínu eins og um móttekin símtöl sé að ræða.

Aðrir vefir