IP net Símans

Einkanet fyrir fyrirtækið

IP net Símans gerir fyrirtækjum kleift að tengja saman starfsstöðvar á lokuðu og öruggu einkaneti, og er því hentug lausn fyrir dreifða starfsemi. Mögulegt er að tengjast IP netinu nánast hvaðan sem er í heiminum.

Með IP neti Símans býðst fyrirtækjum heildarlausn í fjarskiptum. IP netið er fyrir allar stærðir fyrirtækja og ráðgjafar Símans ráðleggja hvaða fyrirkomulag hentar hverju sinni.

Umferð starfsstöðva og þjónustutenginga á IP neti Símans er einangruð frá annarri umferð sem fer um netið. Einnig er auðvelt að setja upp öfluga eldveggi.

Helstu kostir

  • Möguleiki á hámarks nýtingu á þeirri bandbreidd sem fyrirtæki hefur yfir að ráða, ein tenging en margar lausnir.
  • Hægt að samnýta bandvídd fyrir tal, mynd og gögn.
  • Betri nýting á fjárfestingum í netkerfum og minni fjárbinding í búnaði með rekstrarleigu.

Aðrir vefir