Símavist
Farsíminn er líka hluti af IP símkerfinu
Í Símavist býðst fyrirtækjum aðgangur að IP símkerfi gegn föstu mánaðargjaldi fyrir hvern starfsmann. Síminn sér um allar uppfærslur, rekstur og viðhald á símkerfinu og fyrirtækið losnar þannig við útgjöld og umstang sem fylgir þessum þáttum. Jafnframt hafa fyrirtæki í Símavist aðgang að skalanlegu símkerfi sem ætti að henta öllum sem tengjast IP neti Símans. Hægt er að bæta við fjölbreyttri viðbótarþjónustu eftir þörfum fyrirtækja.
Helstu kostir Símavistar
- Sterk samþætting milli símkerfalausnarinnar og GSM kerfisins
- Símkerfið er hýst í öruggum vélasölum Símans.
- Fyrirtæki hafa aðgang að tengingum, breytingum og færslum á númerum í gegnum vefgátt.
- Frasar / talvélar á íslensku.
- Fyrirtæki hafa aðgang að öflugu tölvuskiptiborði þar sem hægt er að fylgjast með viðveru notenda í kerfinu.
- Öll símtöl innan fyrirtækis á 0 kr.*
Tengt efni
Komdu til Símans
Viltu slást í hóp ánægðra viðskiptavina hjá Símanum? Hringdu í síma 800 7000, komdu í verslanir Símans eða sendu fyrirspurn.
